Úrval - 01.08.1967, Qupperneq 63
FUNDU ÍRAR AMERÍKU?
61
fuglar þyrptust að skipinu, og sæ-
garparnir voru vissir um, að þeir
væru komnir tii „Hamingjueyjunn-
ar“. Samkvæmt einni kenningunni
er álitið, að þeir hafi komið að
Floridaskaganum, annaðhvort við
Miami eða St. Augustine. Brendan
kallaði landið Hy Brasil, og þann-
ig er það sýnt á gömlum kortum.
Enn komust ferðalangarnir að
því, að þarna voru einnig menn
fyrir. Það virtust vera írar hvar
sem fæti var stigið líkt og í New
York á degi heilags Patreks hinn
17 marz. Gaeliskur munkur, Festi-
vus að nafni, sem hafði búið þarna
í 30 ár, fylgdi þeim í könnunar-
leiðangur inn í land. Þeir héldu
yfir fen og um regnskóga og komu
auga á krókódíla og kolibrífugla.
Einnig urðu þeir varir við, að Indí-
ánar höfðu auga með þeim. Eftir
nokkurra daga ferð komu þeir að
fljóti, er þeim reyndist ekki unnt
að komast yfir, og sneru þeir aftur
til skips við svo búið.
Nokkrir fræðimenn halda því
fram, að fljót þetta hafi verið Miss-
issippi. Líklegra er þó, að hér hafi
verið um St. John‘s-fljót að ræða.
Það er 20 mílur frá ströndinni og
líklegt til að reynast ókunnugum
erfitt yfirferðar. Hafi þeir komið
að landi við St. Augustine, aukast
líkurnar til þess, að það hafi verið
um fljót þetta að ræða.
Brendan ákvað, að nú væri kom-
inn tími til þess að snúa aftur til
írlands. Hefði hann bara skilið
eftir sig poka af hvítsmára, írska
viðarbareflið Shillelagh eða tóma
Guinnessbjórflösku í Ameríku,
hefði mannkynssagan nú ef til vill
litið öðruvísi út. En því miður verð-
um við að styðjast við sönnunar-
gögn, sem eru ekki alveg eins á-
þreifanleg.
í sögum Shawnee-Indíánanna er
talað um þjóðflokk íra, sem mæli
á írska tungu og sagðir eru hafa
búið á Floridaskaganum fyrr á tím-
um. Nafnið Brendan kemur fram
á kortum við staði þá, sem hann
nefnir í frásögn sinni. í sumum ó-
staðfestum sögum er skýrt frá því,
að Kólumbus hafi lesið frásögnina
af ferð Brendans og hafi lagt svo
mikinn trúnað á hana, að hann hafi
ráðið nokkra írska sjómenn á skip
sín.
Svo er einnig til hin töfrandi
sögusögn um Quetzalcoatl, sem Az-
tekarnir skýrðu Spánverjanum Cor-
tez frá, þegar hann gerði innrás
sína í Mexíkó. Þessari guðlegu veru
var þar lýst sem hvítskeggjuðum
trúboða, sem hefði komið frá heil-
agri eyju, er lægi í norðaustri. í
sögusögninni var skýrt frá því, að
hann hafi knúð sig áfram með
„vængjum", og er þar ef til vill
um segl að ræða. Það er einnig um
nokkur sameiginleg sérkenni að
ræða í menningu og listum krist-
inna manna og Azteka.
Þegar Brendan sneri aftur til ír-
lands, var hann á áttræðisaldri, en
hann var nú ekki á því að setjast
í helgan stein. Um tíma ferðaðist
hann um og sagði fólki sögur af
ferðum sínum. Þetta var löngu fyr-
ir daga litskuggamynda, en samt
er sagt, að áhéyrendur hans hafi
verið algerlega töfraðir af frásögn
hans.
Svo þreyttist hann á frægðinni