Úrval - 01.08.1967, Blaðsíða 71
VÍSINDALEG RANNSÓKN DRAUMANNA
69
Þannig eru draumar okkar
sérstaks eðlis, eins konar sérstök
næturævintýri, sem vekja furðu
okkar.
Andardráttur, hjartasláttur og
blóðþrýstingur fullorðins manns
heldur áfram að vera hinn sami
mestallan tímann sem hann sefur.
En í um 20 mínútur af hverjum 80
að meðaltali breytist þessi líkams-
starfsemi mjög hratt og verður
næstum eins og hjá vakandi manni.
Það var í rauninni þegar á ár-
inu 1953, að dr. Nathaniel Kleit-
man og dr. Eugene Aserinsky (báð-
ir við Chicagoháskóla) hleyptu af
stokkunum nýju tímabili vísinda-
legra „draumamælinga", þegar þeir
uppgötvuðu, að snöggar, endurtekn-
ar augnhreyfingar sofandi fólks
voru merki um það, að því væri að
dreyma.
Þótt það sé rétt, að draumarnir
eigi upphaf sitt í dulvitund okkar,
þá getur ytri likamleg örvun einn-
ig verið orsök þeirra. Kaldur súg-
ur frá opnum glugga getur t. d. orð-
ið til þess, að mann dreymi, að
maður sé staddur í blindhríð á
norðurslóðum. Ef maður rekur
höfuðið í rúmgaflinn, getur mann
dreymt, að það aki bifreið á mann.
Ef þig skyldi dreyma, að þú miss-
ir af lest eða gullnu tækifæri, þá
eru miklar líkur til þess, að þú
hafir átt við eða eigir enn við erf-
itt vandamál að stríða. Draumur-
inn sýnir þér þá mynd, sem veldur
þér vonbrigðum, ómögulegar eða
mjög óþægilegar aðstæður, en á
meðan heldur dulvitundin áfram
sínu starfi, eins og ekkert hafi í
skorizt, vegna þess að hún veit, að
henni mun einhvern veginn takast
að koma þér úr vandræðum þess-
ufn.
Hefur þig dreymt, að þú hafir
dottið fram af bryggju eða niður
úr stiga? Ef svo er, skaltu spyrja
sjálfan þig, hvort þú sért ef til vill
ekki hræddur við að glata pening-
um þínum, vinum þínum eða kær-
leik ástvina þinna. Ef þú getur ekki
skýrt slíkan draum á þessum grund-
velli, þá kann skýringin einfaldlega
að vera sú, að þú hafir snúið höfð-
inu í mjög óþægilega stellingu í
svefninum og truflað þannig eðli-
legt líkamsjafnvægi þitt.
Einn algengasti draumurinn er
sá, sem lýsir sér í því, að hinn sof-
andi er á flótta undan villidýri, t.
d. ljóni eða fíl. Mönnum hættir
einna helzt til að komast í þessar
hræðilegu aðstæður, þegar þeir
hafa áhyggjur af ástandinu á verð-
bréfamarkaðinum eða vegna at-
vinnu sinnar.
Óþægilegir draumar, svo sem
draumur um að týna troðfullu veski
eða vera neyddur til þess að taka
erfitt próf, sem maður hefur alls
ekkert búið sig undir að taka, eru
eins gagnlegir og heillavænlegir og
draumur um, að ríkur frændi rétti
manni 25.000 sterlingspunda ávís-
un. Slíkir draumar orsakast oft af
einhverju óþægilegu vandamáli eða
vandamálum, sem maður verður að
horfast í augu við í starfi sínu. Og
þeir hjálpa til þess að draga úr
álaginu, sem slíkt hefur í för með
sér, eða áfallinu, sem óþægilegar
og erfiðar kringumstæður hafa vald-
ið manni.
Hinn frægi, franski vísindamaður