Úrval - 01.08.1967, Síða 80

Úrval - 01.08.1967, Síða 80
78 ÚRVAL hálfmánans, sem við þekkjum sem Krossferðirnar (58 og 59). Loks kom- um við að kaflanum um fall Kon- stantinopels í hendur Tyrkjum (68) en enn eru þrír kaflar, þar sem saga Rómar er sögð til miðrar fimm- tándu aldar. Hvað orsakaði „hnignun og fall“, Rómaveldis? Svar Gibbons við þess- ari augljósu spurningu er ekki að finna í lokakafla bókarinnar, held- ur í 38. kaflanum: „Hnignun og fall Rómar var eðlileg og óhját- kvæmileg afleiðing af hóflausri stærð. Velmegunin ýtti undir hrörn- unaröflin, kraftur eyðingaraflanna óx samhliða útþenslunni og sigr- unum, og strax og tíminn eða til- viljunin hafði fjarlægt gervistoðirn- ar, lagðist hin mikla bygging saman undir eigin þunga.“ Gibbon gerir það að tillögu sinni, að við „í stað þess að spyrja hvers vegna Rómaveldi hafi liðið undir lok, spyrðum heldur, hvers vegna það hafi haldizt svo lengi við líði.“ og hann heldur áfram og segir: „hin- ar sigursælu legíonir, sem börðust á fjarlægum vígstöðvum og spillt- ust í samneyti við ókunnugt fólk og leiguhermenn, börðust fyrst gegn lýðfrelsi en beittu síðar keisaradóm- inn ofbeldi.... það dró úr mætti herstjórnarinnar.... villimennimir flæddu yfir hinn rómverska heim og færðu hann í kaf ....“ í lokin leiðir hann getum að því, að þó að svo kunni að vera að sinnaskipti Konstantins til kristinnar trúar kunni að hafa hraðað falli keisara- dæmisins, þá „drógu hin sigrandi trúarbrögð úr fallinu og róuðu hið ofsafengna skap sigurvegaranna." f frægum kafla í ævisögu sinni lýsir Gibbon því, hvernig hann skrifaði síðustu línurnar í sögu sinni í sumarhúsi í garðinum við hús sitt í Lausanne, við Gefnarvatn. „Það var daginn og þó fremur um nóttina, þann 27. júní 1787, milli ellefu og tólftu stundar .... eftir að ég hafði lagt frá mér pennann, þá gekk ég fram og aftur um hinn akasíu þakta gangstíg, en akasían byrgir útsýn til landsins, vatnsins eða fjallanna. Loftið var hlýtt, him- inninn heiður, silfurlitaður máninn speglaðist í vatninu, og öll náttúran var þögul. Ég vil ekki leyna því að ég gladdist yfir frelsi mínu sem ég hafði endurheimt og jafnframt máski fest frægð mína í sessi. En hreykni mín átti sér ekki langan aldur, og hljóðlátur dapurleiki sett- ist að sálu minni, þegar mér var hugsað til þess að ég hafði að fullu og öllu skilið við gamlan og við- kunnanlegan félaga, og hvað sem kynni að verða um langlífi sögu minnar, þá var hitt víst, að höfund- urinn átti ekki langt eftir ólifað.“ Höfundurinn lifði í sjö ár eftir þetta, en um langlífi sögu hans er enn ekki vitað. Það eru nú liðin nærri tvö hundruð ár síðan Gibbon lagði frá sér pennann og margt hef- ur á þeim tíma verið uppgötvað varðandi þá borg og það keisara- dæmi, sem hann lýsti með óvið- jafnanlegum glæsileika og virðu- leik. Við höfum nú undir höndum handrit, sem hann leit aldrei aug- um, áletranir, sem hann las aldrei, uppgröft minja, sem hann gat ekki rannsakað, en samt hefur enn ekki verið up neina „hnignun eða fall“,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.