Úrval - 01.08.1967, Síða 93

Úrval - 01.08.1967, Síða 93
STONEHENGE 91 huga að því, að allt eins og grá- steinsdrangarnir í Stonehenge höfðu verið höggnir og lagaðir til með stórum steinsleggjum, þá var þetta alveg sama aðferðin og notuð var í Egyptalandi við smíði hinna háu granít-óbeliska á sama tíma. Sum- ir létu sér jafnvel detta í hug, að ráðinn hefði verið byggingameist- ari fi'á Grikklandi eða Egyptalandi þarna fyrir 35 öldum til þess að endurbyggja Stonehenge a, þann hátt sem varð. En hvað sem því líður, þá er þessi daggarður frá Mýkene einn af mörgum vitnisburð- um um þau verzlunar- og siglinga- sambönd sem lágu víða um Evrópu á þeim tíma, þegar menning bronz- aldar var á hátindi sínum. Það er ætlun manna að Stone- henge hafi tvívegis verið endurbyggt eða að greina megi þrjú stig í byggingu þess. Á fyrsta stiginu hef- ur lítið sem ekkert stórgrýti verið notað, heldur veggir hlaðnir úr jarðvegi og grjóti, en þó var Hele steinnin þá þegar til, því að við hann og sólarupprásina um sólar- stöður miðast allt mannvirkið. Merkilegt er það, að Stonehenge eins og það var fyrst, er ekki eins- dæmi. Fundizt hafa að minnsta kosti þrjú önnur við ofanverða Tempsá á síðari árum, sem bera svipuð einkenni. Og leirker og aðrir munir, sem fundizt hafa á sömu stöðum og í sambandi við þessar menjar, benda allar til sama tíma eða sama stigs í mannfélagsþróunn- inni. Stonehenge var frá fyrstu byrjun sinni hof eða musteri, sem helgað var sólinni, eins og þýðing Hele- steinsins ber vott um. Ýmsar forn- minjar sem fundizt hafa í sambandi við það sýna, að samfara hinum þrem sligum byggingar þess hafa verið mismunandi menningarstig. Er það menningarframsókn brons- aldar, frá veiðimannslífi til akur- yrkju og síðan siglinga og verzlun- ar á blómatímanum, sem þróunin við Stonehenge endurspeglar. Þriðja og lokastigið í byggingu þess ber eins og áður er sagt upp á þetta blómaskeið, en þá mun sólar-trú hafa gengið yfir alla Evrópu. Sú spurning liggur beint við, hvort ekki hafi verið eitthvert náið samband milli slíks mannvirkis úr steini, sem Stonehenge er, og hinna voldugu grafhýsa úr steini frá þess- um tíma sem finnast á írlandi, Bre- tagneskaga, Spáni og víðar. Hring- ar af uppreistum steinum eru á þessum svæðum öllum og í Bretagne eru steinmannvirki, sem jafnast nærri því á við Stonehenge að mik- illeik, enda þótt þau séu því annars mjög ólík að skipulagi og útliti. í nánd við Carnac, nálægt suðvest- urströnd skagans, eru um þrjú þús- und reistir steinar. Sumir standa einir sér, og gnæfa þeir stærstu um sex til sjö metra yfir jafnsléttu, en einn sem nú liggur í fimm-hlut- um á jörðinni mun hafa verið yfir tuttugu metrar á hæð, og vegið full þrjú hundruð og fimmtíu tonn. Furðulegust af öllum minningar- merkjum í Carnac eru . hinar svo- nefndu raðir — alignments — en það eru fjölmargir reistir steinar, sem mynda beinar línur, mörg hundruð metra langar, og marka
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.