Úrval - 01.08.1967, Page 113

Úrval - 01.08.1967, Page 113
LENGI LIFI EUROBABEL! 111 Hin meiri háttar tungumál, svo sem rússneska, arabiska og auðvit- að enska, hafa náð eins konar sér- stakri yfirráðaaðstöðu í heiminum, og það má segja, að þessi staðreynd færi hinar ýmsu þjóðir heims nær hver annarri, hvað tungumál snert- ir. Sömu áhrif hefur aukin útbreiðsla menntunar, bættar samgöngur og löngun fólks um víða veröld til þess að vita, hvernig nágrannarnir í öðr- um löndum lifa lífinu. Og samt ættu þessar staðreyndir ekki að verða til þess, að við gleymdum því, hvílíkur tungumála- hrærigrautur er enn við líði í Evrópu. Það er furðuleg sýn, sem blasir við augum, þegar við lítum á tungumálakort af Evrópu, sann- kallað „Eurobabel"! Fyrir 20 árum lýsti Mario Pei því yfir, að Evrópa ætti algert met miðað við hin meg- inlöndin, hvað þetta snertir. Og enn er þetta staðreynd. X Evrópu vestan rússnesku landa- mæranna eru töluð samtals yfir 40 tungumál, og hið ótrúlega er, að um þrír fjórðu hlutar þeirra njóta op- inberrar viðurkenningar eða sam- tals yfir 30 tungumál. Það er erfitt að nefna alveg nákvæmar tölur, vegna þess hversu erfitt það er að segja til um skilin milli tungumáls og mállýzku. Hvenær er ekki leng- ur um að ræða tungumál, heldur aðeins mállýzku? Skilin milli frönsku og ítölsku eru t.d. svo óljós, að það er sagt, að hinar ýmsu mál- lýzkur, allt frá norðmhluta Frakk- lands til suðurodda ítalíu, séu alltaf næstu nágrönnum skiljanlegar, þannig að í hverju héraði skilji fólkið 2—3 mállýzkur. Á mörgum landamærasvæðum skilur og talar fólk tvö, þrjú eða jafnvel fjögur tungumál. Eftir síð- ari heimsstyrjöldina var fólk sums staðar neytt til þess að flytja burt af ýmsum landamærasvæðum, og varð þetta til þess að skýra svolítið mörkin milli tungumálanna, en það var aðeins sums staðar, sem þetta gerðist. Á Balkanskaga ríkir enn sama tungumálaringulreiðin sam- kvæmt okkar mælikvarða. Allt frá landamærasvæðum Slóvakíu til Epirus í Grikklandi eru a.m.k. sjö stór héruð (svo að ekki sé nú minnzt á þau minni), þar sem fólk, talandi þrjú, fjögur eða jafnvel fimm tungumál, hefur dreifzt svo jafnt og í slíkum hræri- graut um svæði þessi, að ekkert eitt tungumál hefur örugglega yfirhönd- ina yfir hinum málunum. Tungu- mál geta gliðnað í sundur og leystst upp við slíkar aðstæður. Það getur t.d. enginn sagt til um það, hverjir Makedoníumenn eru, án þess að hætta á að verða sjálfum sér ósam- kvæmur í slíkum dómi. Grikkir, sem rekja ættir sínar til Filipusar Make- doníukonungs, segjast vera Make- doníumenn. í Júgóslavíu segja menn, að Makedoníumenn séu náskyldir Serbum, og Búlgarar segja, að Makedoníumenn séu í raun og veru Búlgarar. Portúgal og fsland eru einu lönd- in í Evrópu, þar sem allir landsmenn hafa eitt og sama móðurmálið. í öllum hinum löndunum er um fleiri en eitt tungumál að ræða, jafnvel í hinum allra minnstu ríkjum eða sjálfstjórnarsvæðum, svo sem An- dorra, Luxembourg, Ermasunds-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.