Úrval - 01.02.1968, Page 9

Úrval - 01.02.1968, Page 9
EYJA HINNA AUGNALAUSU VAKTARA 7 Pascunum. Amerískir hvalveiði- menn komu þarna og hirtu sér þræla eða skutu íbúana bara til að reyna hæfni sína. Af þessu urðu Pascuarar ákaflega fjandsamlegir ókunnum mönnum og hlutust af því fleiri árekstrar. Þarna kom að landi hópur franskra trúboða árið 1843 og voru þeir allir stráfelldir. Pascuarnir voru ekki geðþekkir ókunnugum á að sjá. Þeir voru há- vaxnir, eins og Polynesar eru yfir- leitt, og kraftalega vaxnir, og voru karlmennirnir sýnu hærri en kon- urnar. Margir þeirra gengu kvik- naktir en aðrir báru litlar mittis- skýlur og margar konur báru einn- ig grasmittisskýlur og allir klædd- ust barkaðri kápu til skjóls fyrir hráslagalegum vindinum. Mennirnir voru skeggjaðir og bundu hár sitt upp í hnút og báru viðarstauta í eyrnasneplunum. Þeir hörundsflúruðu sig frá hvirfli til ilja og síðan voru karlmennirnir málaðir alhr rauðir og svartir og tók sú myndskreyting á sig hin furðulegustu form. Þegar gest bar að landi þyrptust eyjaskeggjar nið- ur að ströndinni hoppandi og dans- andi og hrópandi. Margir þeirra vildu vera vingjarnlegir en aðrir notuðu minnsta tilefni til að kasta steinum og voru afburða hitnir. Menning þessarar eyjar, Rapa Nui hlaut rothöggið árið 1862. Það var einn dag að perúanskt skip varpaði akkerum við eyjuna, skips- menn réðust á eyjaskeggja, drápu suma þeirra en söfnuðu saman um það bil þúsund manns og fluttu þá brott sem þræla. Jaussen biskup af Tahiti mótmælti þessum aðför- um varð það til þess, að Perústjórn skipaði svo fyrir að fórnardýrun- um skyldi skilað aftur til síns heima. En sú skipun kom helzt til seint, níu hundruð fanganna voru dauðir. Af þeim hundrað, sem lifðu til að halda heim aftur dóu allir nema fimmtán á heimleið úr bólu- sótt og þessir fimmtán, sem náðu aftur heim færðu þeim, sem þar lifðu eftir blóðbaðið, bólusóttina. Úr þessari veiki dó kjarninn úr eyjaskeggjum, þar á meðal Kama- koi kóngur og næstum allir prest- arnir og höfðingjarnir. Þar sem þetta voru mennirnir, sem kunnu skil á leyndardómum menningar- innar týndist menningin með þeim. Síðan gerist það, að kaþólskir trúboðar koma til eyjarinnar og taka til við sitt venjustarf, sem varð þeim auðveldara en ella hefði orðið, vegna þess að fyrirsvars- menn eyjarskeggja voru allir falln- ir frá. Nútímamannúðarhugsjónir í garð þeirra sem lifðu við frumstæð kjör náðu um síðir, til þeirra í Chile og þó að eyjabúar séu fátæk- ir á vestrænan mælikvarða og hafi týnt allri sinni fornu menningu að heitið geti, þá virðast þeir vera hamingjusamir og heilbrigðir. Árið 1955 voru íbúarnir 842 að tölu. Pascuanar voru annað og meira en aðeins villtar mannætur. Þrátt fyrir einangrun sína þróuðu þeir með sér margvíslega menningu. Þeir hjuggu myndir í steina, iðk- uðu íþróttir til dæmis brimreið og tóku þátt i flóknum trúarlegum at- höfnum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.