Úrval - 01.02.1968, Síða 70

Úrval - 01.02.1968, Síða 70
68 URVAL börnum, og geta þau þá engu svar- að á meðan á kastinu stendur, en köstin eru frá 10 og allt upp í 100 á dag. Ekki varir þetta nema svo sem 10 til 20 sekúndur í einu, og veldur lítilli hættu þó að sjúkling- urinn sé á hjóli, sundi eða gangi. Þegar hann kemst til sjálfs sín, en það gerist allt í einu, er sem ekkert hafi gerzt, hann er jafngóður og áður. 3) Þetta þriðja stig, sem kallast á útlendu máli psychomotor-í\oga- veiki, hefur ýms einkenni, hið væg- asta ósjálfráðar varahreyfingar, hin hörðustu langvinn ólundarköst, svo sjúklingurinn er ekki mönnum sinnandi, en hefur það til að verða gripinn ofsalegri bræði og hættu- legur umhverfi sínu ef reynt er að halda honum í skefjum. Þá er sjúkl- ingurinn ekki með sjálfum sér, hann veit ekki af sér, en áður en þyrm- ir yfir hann, kann hann að heyra, eða þykja sem hann heyri, eitthvert lag aftur og aftur. Sumir finna sterka, einkennilega lykt. Sumir sjá ofsjónir, sem líkjast draumsýnum. Nú eru fyrir skömmu komnar fram ýmsar lækningaaðferðir sem lofa góðu. En lengi stóð á því. Á Krists dögum var það siður að hrækja á sjúklinginn, til þess að hrekja úr honum þann „illa anda“, sem þessu átti að valda. Á mið- öldum voru sjúklingarnir oftast brennimerktir til þess að hrekja úr þeim þann hinn sama fjanda. Það var ekki fyrr en á 19. öld, sem ensk- ur læknir komst að því af tilvilj- un, að bróm, sem annars var lyf til að sefa og svæfa, hafði góð áhrif á flogaveika. En um aldamótin 1900 komust læknar að því, að fenóbarbital var enn betra. Árið 1940 fannst svo lyf nokkurt, sem þótti taka hinum fram, því það olli engri syfju og sleni eftir á. Lyf þetta heitir dilantin (og var mark- verð grein um það í Life, okt.-nóv.), og læknar eða heldur í skefjum báðum hinum verri tegundum af flogaveiki hjá mörgum af þessum sjúklingum. En síðan hafa fundizt 25 ný lyf, og meðal þeirra mysolín og celontin. Nú eru á prjónunum miklar fyr- irætlanir um að prófa öll þessi nýju lyf á fljótvirkan og áhrifa- mikinn hátt, og hafna öllu nema því sem bezt reynist. Á fjórum há- skólum og þremur spítölum fara nú þessar rannsóknir fram undir forustu dr. Francis Forster, tauga- sjúkdómasérfræðings, sem starfar við háskólann í Wisconsin, og er ekkert til sparað. Eitt hinna nýju lyfja heitir LA-1, og hefur ekki verið notað um lengri tíma vegna þess að fyrstu skýrsl- um um áhrifin af því bar ekki sam- an. Samt var tilraunum haldið áfram og hefur nú komið í ljós að þetta er ágætt meðal til að lækna flogaveikiskrampa í börnum eldri og yngri, allt frá fæðingu. Öll þau lyf, sem verið er að gera tilraunir með undir forustu dr. Forsters, eru skaðlaus að því leyti, að iíkaminn ánetjast þeim ekki. Síðan verður reynt að velja úr það sem bezt á við hverja tegund veikinnar, eins og hún lýsir sér hjá hverjum einstökum. Samt er til sú tegund sem eng-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.