Úrval - 01.02.1968, Page 82
80
ÚRVAL
ÞaS var jafnvel ástæða til þess
að efast um framleiðslutölur þær,
sem hið opinbera bókhald sýndi,
þótt fáir erlendir hagfræðingar hafi
getað varizt því að blindast af hin-
um staðtölulegu töfrum. Kreml-
stjórnin bar endanlegar fram-
leiðslutölur saman við þær fram-
leiðslutölur, sem gerð hafði verið
áætlun um, í stað þess að bera
raunverulega aukningu saman við
áœtlaða aukningu. Stálframleiðslan
árið 1928 var t.d. 4,2 milljónir
tonna. Samkvæmt áætluninni var
gert ráð fyrir aukningu upp í 10,;
miljónir tonna. Raunveruleg fram-
leiðsla síðasta ár áætlunarinnar var
5,9 milljónir tonna eða 1,7 milljón
tonna aukning í stað 6,1 milljóna
aukningar eða aðeins 28% af hinni
áætluðu aukningu.
Kremlstjórnin sagði í raun og
veru eitthvað á þessa leið: „Við
miðum við 10,3 og fengum 5,9. Því
hefur verið um að ræða 57% upp-
fyliingu áætlunar okkar.“ Sé þessi
reikningsgrundvöllur notaður,
mætti segja, að 40% uppfylling
áætlunarinnar hefði fengizt, þótt
ekki hefði bætzt eitt tonn við fram-
leiðsluna, þ.e. framfarir þrátt fyr-
ir kyrrstöðu.
Hinar opinberu staðhæfingar um
framleiðsluaukningu falla því um
sjálfar sig, þegar slíkar sjónhverf-
ingar koma í ljós. Lýst var yfir því,
að um hefði verið að ræða 84%
uppfylling húsbyggingaáætlunar-
innar, en staðreyndin er samt sú,
að húsnæðisaukningin nam aðeins
44%. (Á sama tíma óx þörfin fyrir
viðbótarhúsnæði nokkur 100%
vegna fjöldaflutninga sveitafólks til
borganna). Samtímis þessu óx
framfærslukostnaður gífurlega,
launin lækkuðu og hungrið óx.
En hið furðulega hefur gerzt, að
þessi 5 ára áætlun hefur færzt yf-
ir á spjöld sögunnar sem ótrúlega
árangursríkt fyrirbæri. Sú trú, að
kommúnismi sé raunveruleg trygg-
ing fyrir hraðri efnahagsþróun í
vanþróuðum löndum, á í rauninni
rætur sínar að rekja til þeirrar
þrálátu blekkingar, sem hófst, þeg-
ar þessu grobbi Stalíns var tekið
sera góðri og gildri vöru í stórum
j .:ta heimsins.
: jg hver er ástæða þess? Það er
ekki erfitt að finna svarið. Fram-
kvæmd áætlunarinnar hafði staðið
í eitt ár, þegar mikil kreppa skall
á hjá iðnþróuðu þjóðunum. Millj-
ónir hræddra manna vildu trúa því,
að einhver hefði svar við vandan-
um. I Rússlandi risu nýjar verk-
smiðjur, á sama tíma og verið var
að loka verksmiðjum í heimalönd-
um þeirra. Þessar táknrænu and-
stæður blinduðu þá alveg. Þegar
framkvæmd áætlunarinnar var
„lokið“, trúðu þeir því þessu talna-
ævintýri og hrópuðu alla þá niður,
sem dirfðust að láta í ljósi efa um
það, sem virtist vera eini ljósi blett-
urinn í dimmum heimi. Menn þráðu
kraftaverk og létu sér nægja föls-
un.
GLÆPAMENN
SAMKVÆMT ÚRSKURÐI
Áætlunin lagði einnig grundvöll-
inn að algerasta lögregluríki á vor-
um dögum. Flest þau illu öfl, sem
eru nú flokkuð undir „stalínisma“,
efldust og náðu fulkomnun á þess-