Úrval - 01.02.1968, Side 118
116
ÚRVAL
um fjölskyldu mína, vini mína,
landa mína, eða mannkynið yfir-
leitt, þá leit ég á það eins og það
í rauninni er, Yahooar, bæði að lög-
un og gerð.“
Að lokum verður hann að yfir-
gefa þetta yndislega land, og hrygg-
ir það hann ákaflega. Eftir að hafa
enn lent í nokkrum ævintýrum
kemur hann aftur til Englands
„þann 5ta desember 1715. Fjöl-
skylda mín varð mjög fegin og
undrandi, þegar ég birtist, því að
hún hafði talið mig af, en ég verð
að játa, að ég fylltist hatri, við-
bjóði og fyrirlitningu við að sjá
konu mína og fjölskyldu.“
Þessi bók endar þannig, að
Gulliver hefur sætt sig það vel við
konu sína, „að ég er farinn að
leyfa henni að sitja til borðs með
mér, en borðið er langt og ég sit
við annan endann en læt hana sitja
við hinn, en samt fyllir Yahooa
lyktin vit mín enda þótt ég troði
í þau ilmjurtum og tóbaksblöðum."
Þetta er einkennileg saga með
einkennilegum endi — en af því
að hún er sögð af svo miklu ímynd-
unarafli og svo margslungin hefur
hún töfrað unga sem aldna í meir
en tvö hundruð ár. Þegar sleppt
er hugleiðingum um ýmislegt í
siðum og venjum Englendinga og
annarra þeirra vera, sem Gulliver
hittir, hefur hún orðið sígilt lestr-
arefni unglinga. En Swift hataði
börn. Ef sagan er öll sögð, er hún
einhver harðvítugasta og skýrasta
árás á enska lifnaðarhætti, sem
nokkru sinni hefur verið rituð, en
enskir lifnaðarhættir hafa ekki
breytzt að marki í 200 ár.
Jónatan Swift var- af enskum
ættum, en fæddur í Dyflinni árið
1667. Hann ólst upp við bláfátækt
— og sennilega vegna getuleysis
hefur hann gengið í þjónustu kirkj-
unnar tuttugu og sjö ára að aldri
og fékk starf í grennd við Belfast,
sem nægði honum til að draga fram
lífið. Meðan hann var þarna skrif-
aði hann tvær velheppnaðar bækur,
The Tale of a Tub, en hún fjallar
um spillingu í trú og kennslu og
The Battle of the Book, em fjallar
um hið ævagamla stríð milli fornrar
og nýrrar menningar.
Hann eyddi miklum tíma í ferða-
lög milli Englands og írlands, en
hann hafði alla tíð andúð á ír-
landi, enda þótt hann ynni mikið
í sókn sinni. í Englandi leitaði hann
eftir sambandi við bókmenntalega
sinnaða menn, eins og Addison,
Steel og Congreve. Þegar kom fram
á árið 1714 hafði hann gefið upp
alla von um að geta setzt að í Eng-
landi og sætti sig við að búa á
írlandi til æviloka.
Hann hafði lengst af ævi sinnar
mjög margþætt samband við tvær
konur, sem hann kallar: Stellu og
Vanessu, og Dagbókin til Stellu
varpar einkennilegu ljósi á hann.
Það getur vel verið að Swift hafi
kvænzt Stellu sinni, þegar hann var
46 ára, en það er samt ekki vitað
með neinni vissu, fremur en það
er vitað með vissu, hvort hann bjó
undir sama þaki og hún. Jafnframt
þesu sambandi við Stellu, hélt hann
uppi bréfaskriftum við Vanessu.
Hann ritaði mikið, en fátt af því
er nú til, en árið 1726, árið áður en
Stella, sem hefur máski verið eina