Úrval - 01.05.1970, Síða 8
6
Áreiðanlega vildu margar iðnaðar-
þjóðir heims milcið til geja að hafa
þá aðstöðti, sem við höfum gegnvart
mengunarvandamálinu . . .
Við höfum mikla möguleika
til að verjast mengun
Eitt mesta vandamál
mannkynsins er meng-
un, eitrun andrúms-
lofts, sjávar og vatns.
Hvarvetna í heiminum
er glímt við þetta
vandamál og vaxandi
fjárupphæðum varið til
að koma í veg fyrir
mengun, sem farin er að
ógna öllu lífi á stórum
svæðum jarðarinnar.
Nýlega var þess t.d. get-
ið í fréttum, að Nixon
Bandaríkjaforseti hefði
haldið ræðu í þinginu,
þar sem hann sagði
menguninni stríð á
hendur, hét stóraukn-
um fjárframlögum til
baráttunnar og lýsti yf-
ir, að hvert það fyrir-
tæki, sem ekki héldi
settar reglur um meng-
un vatns og andrúms-
lofts yrði látið greiða
gífurlegar fjársektir eða
um 880.000 ísl. króna á
dag. Svona alvarlegum
augum er litið á meng-
unarvandamálið nú á
tímum.
Á fslandi hefur til
skamms tíma verið
hljótt um þetta mál, við
höfum andað að okkur
hreinu og heilnæmu
lofti, okkur hefur ekki
skort drykkjarvatn og
við höfum ekki haft
neinar áhyggjur af
sj ónum við strendur
landsins, fólk hefur ekki
orðið vart við að sér-
stök hætta væri á ferð-
um. Það er ekki fyrr en
á allra síðustu misserum
sem viðvörunarkerfið
hefur sýnt rautt ljós og
orðið mengun er á allra
vörum. Þrátt fyrir það
er óhætt að fullyrða, að
mikið skortir á, að full-
nægj andi ráðstafanir
hafi verið gerðar hér á
landi af opinberri hálfu
til að koma í veg fyrir
mengun eða halda henni
innan nauðsynlegra
takmarka.
Það skal þó strax tek-
ið fram, að íslendingar
eru ennþá betur á vegi
staddir í þessum efnum,
en flestar aðrar þjóðir,
og möguleikar okkar til
að verjast hvers konar
mengun eru tiltölulega
miklir, sé snúizt snar-
lega við vandanum. Að
öðrum kosti hljótum við
að lenda í sama pyttin-
um og hent hefur aðrar
þjóðir heims.
Eins og áður segir er
um þrennskonar meng-
un að ræða, þ.e. lofts,
sjávar og vatns. Að lík-
- Alþýðublaðið -