Úrval - 01.05.1970, Side 21
19
Thomas og
Barclay rannsaka
brotna hauskúpu-
— sönnuargagn
um morö.
EFTXR
LOWELL THOMAS,
kunnan útvarps- og sjónvarpsmann
og höfund
50 ferðabóka.
hana! „Við urðum að fara þangað í
leit að sönnunargögnum,“ sagði
Barclay máli sínu til skýringar.
Hann sýndi mér í poka einn. í hon-
um var brotin hauskúpa og ýmis
mannabein. „Við vitum, hverjir
drápu konuna, og við verðum að
fara aftur inn í skóginn til þess að
handsama þá. Annars mun allt loga
í ættflokkaerjum á þessu svæði inn-
an skamms.“
FARANDRIDDARAR
Það er enginn staður á gervöllu
jarðríki sem Nýja-Guinea. Og það
eru engir menn á gervöllu jarðríki
eins og áströlsku lögreglumennirnir
þar. Þeir eru hinir goðsagnakenndu
„Utanmenn", hinir fífldjörfu ævin-
týramenn, sem urðu fyrstir til þess
að rannsaka þetta óvinveitta land og
opna hina dularfullu, ógnvekjandi
dali eyjarinnar fyrir umheiminum.
Þeir eru farandriddarar, 547 manna
ástralskt lögreglulið, sem er að
vísa 2.308.000 negrum á Nýju-Guin-
eu veginn út úr steinöldinni.
Það er allt svo villimannlegt, af-
skekkt og ólýsanlega frumstætt á
Nýju-Guineu, að Amazonsvæðið er
bara vinalegt í samanburði við eyju
þessa. Hrikaleg fjalllendi teygja sig
hátt til himins eða allt upp í 15.400
feta hæð. Gruggugar ár eru morandi
í mannætukrókódílum. Á eyjunni
eru sjötíu tegundir af snákum og
slöngum, og eru flestar þessar teg-
undir eitraðar. Þessar slöngur
hlykkjast hljóðlaust áfram á meðal
trjánna og uppi í þeim í ofboðslega
þéttum, rökum frumskógunum.
Þarna eru engar járnbrautir. Eng-
inn malarvegur hefur jafnvel enn
verið lagður inn í land.
Frumbyggjar Nýju-Guineu eru
enn frumstæðustu og vanþróuðustu
mannverur á þessari jörð að undan-
skildum þeim, sem búa úti við