Úrval - 01.05.1970, Qupperneq 41
JOAN SUTHERLAND
39
lega raddsvið. Joan og móðir henn-
ar börðust gegn þessari viðleitni
hans og vildu ekki gefast upp. Sama
var að segja um kennara hennar í
óperudeild Konunglega tónlistarhá-
skólans. Loks tók Richard að beita
bragða. Hann hóf söngæfingu í E-
dúr fremur en C-dúr, en síðan lokk-
aði hann Joan til þess að syngja
hærra en hún hafði ætlað sér. Hún
gerði sér ekki grein fyrir þessu, því
að hana skorti fullkomna tónheyrn.
Hin dýrðlega rödd hennar tók
enn framförum, og svo fór, að for-
ráðamenn Covent Garden-óperunn-
ar urðu svo hrifnir, að þeir buðu
henni samning. Hún átti að fá 17
pund á viku, er hún syngi í Lund-
únum, en 25 pund í söngferðalög-
um. Og 14 mánuðum eftir komu
sína til Lundúna söng Joan svolítið
hlutverk í Töfraflautunni í Kon-
unglega óperuhúsinu í Covent Gar-
den.
„TVÖ HJÖRTU í TAKT“
Útlit hennar breyttist smám sam-
an fyrstu ár hennar við Covent
Gardenóperuna. Hún léttist um 52
pund. Tennur hennar höfðu ekki
verið góðar né fallegar, svo að hún
lét lagfæra þær eftir öllum kúnstar-
innar reglum, stytta þær og rétta.
Þessar aðgerðir voru nokkuð kvala-
fullar og mjög dýrar, og tóku þær
um ár. Og hún lærði að snyrta sig
og mála á áhrifamikinn hátt. Nú
höfðu þau Richard og Joan gert sér
grein fyrir því, að það var ekki að-
eins tónlistin og listastörfin, sem
tengdu þau saman. Einn daginn
hætti Richard að leika í miðju lagi
og bað hennar á ósköp hversdags-
legan hátt: „Já, endilega, stórkost-
leg hugmynd," sagði Joan, eins og
ekkert hefði í skorizt.
Nú var það fyrst og fremst Rich-
ard, sem ól með sér mikla drauma
um frekari frægð og frama henni
til handa. Hann sagði við hana:
„Einhvern tíma muntu verða helzta
söngstjarnan á öllum helztu óperu-
sviðum heims. Þú verður eins stór-
kostleg og sjálf Melba var.“ Joan
hló hæðnislega að þessum orðum
hans, en Richard var ákveðinn í
sinni trú. Hann gramsaði í forn-
bókaverzlunum og búðarholum í
leit að nótum að gömlu óperunum,
sem hann elskaði, óperunum, sem
voru þá alls ekki lengur í tízku. Og
nú eyddi hann sífellt meiri tíma á
æfingum með konu sinni og æfði
verk þessi æ ofan í æ. Adam Carl,
sonur þeirra, fæddist árið 1956, en
það var fátt annað, sem þau létu
tefja sig frá stöðugri vinnu sinni.
Richard var alltaf að staglast á því
við forráðamenn Covent Garden-
óperunnar, að þeir ættu að láta Jo-
an fá aðalsönghlutverk, en þeir
héldu því alltaf fram, að hún hefði
alls ekki útlit söngstjörnu. Sir Da-
vid Webster, aðalframkvæmdastjóri
Covent Gardenóperunnar var sá
eini, sem áleit, að Joan gæti orðið
stórkostleg söngstjarna, ef unnt yrði
að finna rétta óperu handa henni.
Og loks samþykktu forráðamenn
óperunnar að „vekja“ óperuna „Lu-
cia di Lammermoor" upp af værum
svefni, en aðalkvenhlutverk henn-
ar var einmitt „bel canto“-hlutverk-
ið, sem Melba, hin mikla coloratura-
söngkona Ástralíu, hafði unnið stór-
kostlegan sigur í fyrir 71 ári.