Úrval - 01.05.1970, Side 56
54
ÚRVAL
þau þegjandi og kvíðafullir, en ótta-
lausir enn sem komið var.
Fjörutíu og sjö menn í sex löng-
um bátum lögðu að landi, og innan
tíðar bundu þeir bátana hljóðlega
við klettana. Breiðir plankar voru
festir milli lunningar og lands. Síð-
an öxluðu veiðimennirnir sverar og
stuttar kylfur og læddust síðan í
átt. til fuglanna fyrir ofan.
Af eðlishvöt sneri geirfuglinn sér
til maka síns og afkvæmis og ýtti
þeim inn í afkima í klettasprung-
unni sinni. Siálfur stóð hann á verði
innan við inngönguopið.
..Ra, sagði ég ykkur ekki!“ hróp-
aði einn mannanna. ,,Ég sagði, að
geirfuglinn kæmi aftur í ár. Þarna
stendur verðmæti, gulls ígildi.‘“
Brátt höfðu mennirnir klöngrast
upp að efstu varpsyllunum. Þar
dreifðu þeir sér í langa röð og hófu
að reka fuglana niður að bátunum.
Við og við slapp fugl gegnum röð-
ina, en flestir þeirra áttu einskis
annars úrkosta en kjaga niður klett-
ana í átt til sjávar. Fuglarnir gáfu
frá sér reiðiarg og angistarkvein, er
þeir voru skildir frá afkvæmum
sínum. Þeir voru þvingaðir sífellt
nær bátunum og mennirnir tóku að
leggja til atlögu við þá með kylf-
urnar að vopni.
Innan klukkustundar höfðu þeir
fyllt bátana af fugli. Var þá róið í
átt til skipanna föstum áratogum,
og' mennirnir kváðu við raust:
„Ohoi, ohoj, áfram nú!“, er þeir
komu til skipanna. Á meðan var
drápinu haldið áfram í landi, og
þegar tómir bátarnir komu þangað
aftur, fermdu mennirnir þá fugli
að nýju.
Alls fóru bátarnir sjö ferðir í
land. Þennan júnídag í Danellsfirði
voru rúmlega 4800 fullorðnir geir-
fuglar drepnir.
í NAFNI VÍSINDANNA
Það var ekki fyrr en löngu eftir
dagrenningu að geirfuglinn kjagaði
varlega út úr fylgsi sínu í kletta-
klungrinu. Hann stóð í margar mín-
útur og skimaði í kringum sig. Fyrir
utan hann og maka hans höfðu að-
eins sex aðrir fullorðnir fuglar í
varpinu komizt lífs af.
Aðeins þrír hinna 2400 unga, sem
skriðið höfðu úr eggjum tæpum
tveim vikum áður, lifðu drápið af.
Einn þeirra var litli síétandi geir-
fuglsunginn. Hinir tveir voru einn-
ig kvenfuglar, sem höfðu á náðar-
samlegan hátt sloppið lifandi, og
foreldrar þeirra fundið þá aftur.
Eftir að hinir eftirlifandi fuglar
höfðu fengið sér að éta, fór geir-
fuglinn með fáeinum öðrum í könn-
unarferð um fjörðinn. Þeir stönzuðu
oft á leiðinni og görguðu ámátlega.
Smáhópur geirfugla í lítilli vík um
mílu í burtu heyrði loks til þeirra
og svaraði garginu. Þetta voru 77
fuglar, og þeir syntu nú hratt út á
fjörðinn til móts við hina fuglana.
Fyrir þeim fór gamli kvenfuglinn.
Þetta voru einu fuglarnir, sem kylf-
ur veiðimannanna höfðu ekki náð
til. Þannig voru nú samtals 86 full-
orðnir geirfuglar á lífi og 3 ungar.
En ágangur mannsins var ekki úr
sögunni. Morgun einn skreið annað
skip inn mynni Danellsfjarðar. Nú
var mánuður liðinn frá drápinu
mikla, en þeir hræðilegu atburðir
voru fuglinum enn í fersku minni.