Úrval - 01.05.1970, Page 57
55
Hann gargaði allt hvað af tók, og
fuglarnir í grenndinni stungu sér í
sjóinn. En sex fullorðnir fuglar urðu
eftir — foreldrar unganna þriggja,
sem enn kunnu ekki að synda.
Á skipinu var hópur vísinda-
manna, sem gerður var út af örk-
inni á vegum náttúrugripasafns
nokkurs. Mennirnir vissu mætavel
um fágæti þessarar fuglategundar,
og þeir ætluðu því aðeins að drepa
tvo fullorðna fugla og tvo unga til
að endurnýja slitin sýnishorn í safn-
inu. En þegar byssukj aftarnir loks
þögnuðu, lágu eftir dauðir fjórir
fullorðnir fuglar og allir ungarnir
þrír.
LÍFSNEISTI
Þetta sumar sáu sjófuglar Norð-
ur-Atlantshafsins, sem voru á flugi
hátt uppi yfir jökulköldum Labra-
dorsstraumnum, fágæta sjón. Það
var hópur 82 geirfugla á sundi frá
Grænlandi til Kanada seinnihluta
júlímánaðar. Það hafði aldrei gerzt
fyrr á þessum árstíma. Og það átti
ekki eftir að gerast aftur.
Geirfuglinn synti með hóp sinn
til St. Michaelsflóa á Labrador, þar
sem 55 fuglar höfðu orðið eftir að-
eins tveim mánuðum áður. Þá höfðu
þessir 55 fuglar verið óverulegur
hluti af heildarfjöldanum, sem þá
var um 5000 fuglar. Nú hafði þeim
fjölgað í 73 yfir vai'ptímann, og þvi
tvöfaldaðist nú næstum heildafjöldi
geirfuglanna, er þessir höfðu bætzt
í hópinn.
Þrátt fyrir það virtist nú heldur
ólíklegt, að fuglinum tækist að
fjölga sér verulega að nýiu. Jafnvel
óveður gæti nú þurrkað út stofninn.
Og það gerðist líka næstum því.
Allur hópurinn, 155 fuglar, komst
klakklaust yfir Hatterashöfða, en
viku síðar fór hvirfilvindur um
strendur Norður-Carolina, og hafði
hann hræðilegar afleiðingar í för
með sér. Það var aðeins fyrir ein-
stæða heppni, að nokkur geirfugl
skyldi komast lífs af.
Forystufuglinn var einn þeirra
heppnu, þó að hann hefði borizt í
storminum yfir Pamlicosund til
meginlandsins. Þegar hvirfílvind-
inum slotaði synti hann af stað í
átt að Hatteraseyjunum. Næsta dag
hitti hann fyrir fjóra geirfugla, og
meðal þeirra var hans gamli vinur,
eineygði kvenfuglinn. f fjóra daga
flökkuðu fuglai-nir um ströndina.
Loks fundu þeir tvo geirfugla í við-
bót við Hatterashöfðann. Einn
þeirra var maki forystufuglsins.
Nú voru aðeins sjö geirfuglar eft-
ir.
Ennþá var veik von til þess að
stofninn yrði ekki aldauða, þar sem
af þessum sjö fuglum voru fjórir
ungar úr Labradorshópnum, tveir af