Úrval - 01.05.1970, Qupperneq 62
60
ÚRVAL
góður árangur af því. Skipunum,
sem fórust, stórfækkaði. En skip
innan brezka kaupskipaflotans, sem
ekki höfðu þennan útbúnað, héldu
áfram að farast af völdum eldinga.
Þegar stálskipin tóku að leysa af
hólmi gömlu tréskipin, fækkaði
skiptöpunum, sem rætur sínar áttu
að rekja til eldinga, all verulega.
í raun er stálskip með möstrum
samfelldur eldingarvari. Nútíma
skip verða því sjaldan fyrir áfalli
vegna eldinga.
Hvers vegna koma eldingar? Vís-
indamenn líkja jörðinni við afar-
stóran rafgeymi, sem þarfnast stöð-
ugrar hleðslu. Jörðin gæti misst
alla hleðslu sína á einni klst., ef
hún nyti ekki endurhleðslu. Þrumu-
veðrin hlaða jörðina rafmagni.
Stöðugt tap rafagna út í andrúms-
loftið helzt í jafnvægi vegna þús-
unda þrumuveðra, sem skjóta raf-
ögnunum aftur til jarðarinnar send-
andi 100 leifturhleðslur á sek. til
hnattar okkar.
Áætlað er, að sem næst 2000
þrumuveður séu í gangi á sama
tíma, alltaf. Yfir sólarhringinn mun
það gera 44.000 þrumuveður. Sjór-
inn getur verið stilltur og hreinn
eftir þrumuveður, sem gengið hef-
ur yfir á staðnum, en samt eiga sér
stað einhvers staðar á jörðinni að
100 leifturhleðslur dynja á jarð-
kúlunni á sérhverri sekúndu.
Eldingarblossi hefur aðeins eina
afhleðslu. En þegar eldingarnar eru
margar, sem slá niður, getur verið
um 40 afhleðslur að ræða á sek.
eða skemmri tíma. Líkist þetta þá
fljóti, sem fær rennsli frá mörgum
hliðarám. Geysistór blossi getur
orðið allt að 20.000° heitur og sjö
mílna langur. Afhleðsla slíks blossa
hefur sent öldur þúsundir mílna
vegalengd út í geiminn, sem komið
hafa aftur til baka hins vegar á
jörðinni. Að lögun til getur þetta
verið strik, talnaband, silkiborði,
kvísl, blað eða kúla, og auðvitað
geislabaugur hins heilaga Elmos.
Þegar elding fer um andrúms-
loftið, hitnar loftið umhverfis hana
og þenst skyndilega út. Þessi út-
þensla framkallar hljóðbylgjur, sem
við skynjum sem þrumur.
Samt vitum við ekki fullkomlega
hvernig þetta myndast. Menn eru
ekki vissir um, hvort rafmögnunin
á sér stað vegna tilveru ísagna,
vatnsdropa og loftstrauma, eða
hvort raforkan framleiðist án þátt-
töku þessara frumparta.
Sumir vísindamenn telja að raf-
magn verði til vegna ákafrar
blöndu á regndropum og snjóhögl-
um inni í skýjunum. Blandan fram-
leiðir rafmagn í kyrrstöðu (static
electricity), og þessar hleðslur
halda áfram að aukast vegna hinna
ofsalegu hreyfinga, sem eiga sér
stað inni í þrumuskýjunum.
Fljótlega valda þessi öfl því að
gríðarstórar rafhleðslur verða til
með jákvæðu rafmagni ofan til, en
neikvæðu að neðan. Að minnsta
kosti er þetta skoðun ýmissa vís-
indamanna.
Fyrirbærið er hliðstætt við það,
sem gerist, þegar einhver nuddar
fótunum við gólfteppið og snertir
síðan málmhlut.
Eldingar eða rafmagn er raun-
verulega alls staðar. Þú getur
myndað smáhleðslu með því að