Úrval - 01.05.1970, Síða 67
YOGA OG VÍSINDl
65
Uf saltpéturssýru fyrir milljónir
áhorfenda í bandaríska sjónvarpinu.
Þó urðu honum eitt sinn á mikil
mistök. Fyrir þremur árum lýsti
hann því nefnilega yfir að hann
gæti gengið á vatni. Mikill fjöldi
áhorfenda hafði því safnazt saman
til að sjá hann þar sem hann gengi
á vatninu í stórum tanki. Nú birt-
ist yoginn og hugðist ganga út á
vatnið. En því miður sökk hann
samstundis á bólakaf og hvarf aug-
um mannfiöldans.
Menn eins og Strikanta Raó vinna
raunverulega yoga mikið tjón, því
að þeir koma óorði á það og valda
þar með miklum misskilningi, með
sýndarmennsku sinni og afkáralegu
háttalagi. En þó hafa ýmsir raun-
verulegir yogar vakið athygli vís-
indanna og verið rannsakaðir af
þekktum vísindamönnum. Einn
fyrsti vísindamaðurinn, sem gerði
þessar athuganir, var dr. Therese
Broze við háskólann í Harvard.
Dr. Broze kom fyrst til Indlands
árið 1936, ásamt nokkrum öðrum
læknum. Rannsökuðu þeir nokkra
yoga og komust að raun um, að þeir
gátu hægt á önduninni og dregið
saman hjartaæðarnar með viljaafli
sínu einu. En þessi mikli samdráttur
æðanna og mir.nkandi öndun gerist
annars aðeins skömmu áður en lík-
aminn deyr. Rannsóknirnar sýndu
og fram á, að yoga mætti grafa lif-
andi að meinalausu. Þá komst dr.
Broze að raun um, að þegar yogarn-
ir eru í djúpri hugleiðingu, er and-
ardráttur þeirra vart merkjanlegur.
Síðastliðin 12 ár hafa að minnsta
kosti 500 yogar verið rannsakaðir af
vísindamönnum. En þótt ýmsum
fullyrðiiigum yoganna hafi verið
hnekkt, hafa samt margar verið
staðfestar Og mikilvægast er að
vísindalegar útskýringar hafa feng-
izt á flestum fyrirbærum, sem yog-
arnir framkvæma með viljaafli sínu.
Nú hin síðari ár hafa indverskir
vísindamenn stundað umfangsmikl-
ar rannsóknir á yogum. Hafa þeir
rannsakað allt að 500 síðan 1957.
Þar af gátu um það bil 50 staðið við
fullyrðingar sínar. Þeir gátu til
dæmis stöðvað hjartsláttinn, mynd-
að svita hvar sem er á líkamanum
þegar þeir vildu og meira að segja
látið grafa sig lifandi í nokkrar
klukkustundir.
Þegar dr. Chinna, einn af vísinda-
mönnunum, var spurður um rann-
sóknirnar sagði hann: „Sumt af því
sem yogarnir fullyrtu að þeir gætu
gert, hefur verið staðfest og skýrara
ljósi varpað á annað. Ef niðurstaða
athuganna á einhverjum yoganna er
neikvæð, er ekki þar með sagt að
hann geti ekki framkvæmt það sem
hann segist geta.
Enn ýtarlegri rannsóknir þurfa að
fara fram á yoga til þess að betri
skilningur fáist á hvað það í raun-
inni er. Athuganir hafa þó leitt í
ljós, að líkur eru fyrir, að bæta megi
og auka starfsemi líkamans með
yoga æfingum," segir hann.
Það margir yogar hafa nú sýnt
fram á í tilraunastofum vísinda-
manna, að þeir búa yfir svo óvenju-
legum mætti tii að stjórna starfsemi
líkamans með yoga æfingum, að
þessir hæfileikar þeirra teljast ekki
lengur aðeins líkur heldur því næst
vísindaleg staðreynd.
Hér verður nú greint frá nokkr-