Úrval - 01.05.1970, Síða 85
VEITIÐ FRÁSKILDUM EIGINMÖNNUM ....
83
breyttum aðstæðum, en síðan ættu
þær að taka á sig alla ábyrgð af
því að sjá fyrir sér sjálfar. Þar sem
um börn er að ræða, ættu dómstól-
arnir aftur á móti að endurmeta
allar aðstæður öðru hverju. Þegar
fráskilin kona er orðin fær um að
vinna utan heimilisins, ættu greiðsl-
ur til hennar að minnka eða hætta
alveg, og ætti þá að taka tillit til
þess, hverjar tekjur hún hefur fyr-
ir störf eða annað. Það er satt, sem
sálfræðingarnir halda fram, þ. e.
að það sé ekki hollt fyrir konu að
halda áfram að vera fjárhagslega
háð manni, sem hún hefur ekki
augum litið árum saman.
Loks ætti fráskilinni konu ekki
að vera frjálst að flytja hvert á
land sem er að eigin geðþótta. Hafi
hún góðar ástæður til þess að
flytja, þá er það líklegt, að fjár-
hagsleg afkoma hennar batni við
flutninginn. Og í slíku tilfelli ættu
lífeyrisgreiðslur og barnsmeðlög
fyrrverandi eiginmanns hennar að
lækka, svo að hann geti haft meira
fé afgangs til ferðalaga á fund
barna sinna eins oft og unnt er.
Af því, sem ég hef sagt hér að
framan, megið þið ekki draga þá
ályktun, að ég álíti, að skilnaður sé
auðveldur fyrir konur. Konurnar
þrjár, sem um ræðir, teljast einnig
til vina minna. Ég hef líka heyrt
þá hlið málsins, sem að þeim snýr.
Ég veit, að þær hafa þjáðst. En mér
finnst, að við óbreyttar aðstæður
sé ætlazt til þess, að mennirnir beri
of mikinn hluta byrðanna, sem
hjónaskilnuðum fylgja, en það sé
ætlazt til þess, að fyrrverandi eig-
inkonur þeirra beri sem allra
minnstar byrðar. Eg hef það mikið
álit á þessum þrem konum, að ég
trúi því, að þær séu líka nógu
sterkar til þess að bera byrðar.
☆
Maður einn í Dallas fór í ýtarlega læknisskoðun. Að henni lokinni
sagði læknirinn honum, að líkamsástand hans væri gott, að því undan-
skildu, að hann hefði of háan blóðþrýsting og of mikið oholesterol-magn
i blóðinu. Þessi skoðun kostaði auðvitað talsvert, en sjúklingurinn var
samt ánægður yfir að vita nú vissu sína. Hann kallaði iá leigubíl úti á
gangstéttinni tii þess að komast sem fyrst til vinnu sinnar. Bílstjórinn
var vingjarnlegur og ræðinn, eins og þeir eru sumir hverjir. „Varstu
að koma frá lækninum?" spurði bilstjórinn. Maðurinn svaraði því til,
að hann hefði verið þar í ýtarlegri læknisskoðun. „Jæja, einmitt það,“
sagði leigubílstjórinn, „mér finnst þú lita út fyrir að vera einn af
þessum hraustu kaupsýslumönnum, nema þú hefur llklega of háan
blóðþrýsting og of mikið oholesterolmagn í blóðinu."
Ourt Johnston.
Flugmenn þotuflugvéla af venjulegri stærð hafa þegar uppnefnt risa-
þoturnar Boeing 747, sem taka 400 farþega. Þeir kalla þær „Álskýin."
Neil Morgan.