Úrval - 01.05.1970, Qupperneq 97
'HARMLEIKURÍNN I TIBEL 95
unista á klaustrin urðu nú daglegt
brauð.
Dalai Lama fannst sem hann gæti
ekkert aðhafzt, því að hann vildi
ekki steypa þjóð sinni út í algera
styrjöld. Þegar farið var að síga á
síðari hluta ársins 1956, voru Kín-
verjar jafnvel teknir til að gera tí-
betska karlmenn ófrjóa í sumum
héruðum og neyða tíbetskar konur
til þess að giftast óbreyttum borg-
urum af kínverskum ættum. Fyrir
sérhverja andstöðu við fyrirskipan-
ir kommúnista var hegnt af fá-
heyrilegri grimmd, oft opinberlega
fyrir allra augum. íbúum hins af-
skekkta þorps, Ba-Jeuba, var safn-
að saman. Og þeir voru síðan
neyddir til að horfa á krossfestingu
25 auðugra manna. í sama þorpi
urðu karlar og konur að horfa á
það, er lífið var murkað úr 24 for-
eldrum á þann hryllilega hátt, að
naglar voru reknir í augu þeirra.
Ástæðan var sú, að foreldrar þess-
ir höfðu neitað að senda börn sín
í kínverska skóla.
Það gat ekki hjá því farið, að
hinir herskáustu af Tíbetbúum leit-
uðu hefnda fyrir þessi hryðjuverk.
Allar aðstæður höfðu því þróazt
þannig, að búast mátti við stór-
felldum átökum á hverri stundu.
Og líkurnar á slíku jukust nú mjög,
er Khambar tóku að flytjast í sí-
vaxandi mæli til Lhasa.
STÓRFELLDUR
F J ÖLDAFLÓTTI
Hinn sjálfkjörni leiðtogi þeirra
þúsunda Khamba, sem streymdu nú
til höfuðborgarinnar, var hávaxinn,
grannur, ungur maður, sem var
einnig nýkominn til Lhasa eftir
óskaplega hrakninga. Nafn hans
var Chime Youngdong. Því var eins
farið með hann og Dalai Lama, að
hann hafði verið álitin helg per-
sóna strax á unga aldri. Honum var
veitt nafnbótin Rimpoche (Hinn
dýrmæti). Hann hafði búið í Ben-
chen-munkaklaustrinu í Jyekundo-
héraðinu austur við landamæri
Kína.
Faðir Chime var konungur í
Jyekundo. Og það var einmitt í
þessu héraði, sem kínverska her-
námsliðið hafði framið sum af sín-
um verstu hryðjuverkum. Mörg
munkaklaustur höfðu vejrið van-
helguð, og munkar höfðu verið
reknir í nauðungarvinnubúðir
hundruðum saman eða teknir af
lífi. Og fyrir tveim mánuðum hafði
konunginum verið rænt, eftir að
hann þáði boð hernámsliðsins um
að koma í heimsókn í kínverskar
herbúðir þar í héraðinu.
Eftir mannrán þetta fannst
Chime, að hann yrði að halda á
fund Dalai Lama og biðja hann um
að koma íbúum Jyekundo til hjálp-
ar. Hann var aðeins 18 ára að aldri
og hafði aldrei komið út fyrir Jye-
kundo. En samt lagði hann af stað
í hina löngu og erfiðu ferð til Lhasa.
Hann dulbjó sig sem þjón og hélt
burt frá munkaklaustrinu með mik-
illi leynd að næturlagi. Næstum
þúsund manns lagði upp í ferð þessa
með honum, þar á meðal 800 skæru-
liðar af ætt Khamba. Þegar hópur-
inn var staddur uppi á fjallstindi
einum næsta dag, beindi Chime
sjónauka sínum að munkaklaustrinu
og sá nú, hversu naumlega hann