Úrval - 01.05.1970, Side 117
HARMLEIKURINN í TÍBET
fólki út fyrír borgina, jafnvel þótt
ekki yrði um neina bardaga að
ræða. Mundu Kínverjar bíða, með-
an slíkt væri gert?
Það var eins og verið væri að
svara spurningu þessari, þegar tí-
betskur hermaður kom með skila-
boð frá Sumarhöllinni. Njósnarar
höfðu komið með þær fréttir, að
Kínverjar ætluðu að nota skrið-
dreka sína næsta dag. Og þeir höfðu
bætt því við, að fyrsta skotmark
þeirra yrði einmitt dómkirkjan.
OFSAREIÐI ÞJÓÐARINNAR
Sunnudagsmorguninn 22. marz
gerðu Kínverjar árásir úr þrem átt-
um til þess að yfirbuga borgarbúa
algerlega og ná allri borginni á sitt
vald. Fallbyssukúlum rigndi niður
á dómkirkjuna, og skotið var með
vélbyssum á mannfjöldann á dóm-
kirkjutorginu. Svo gerðist það, sem
Thondup hafði verið varaður við. f
fjarlægari enda Shagyaristrætis
birtust nú þrír kínverskir skrið-
drekar.
Fyrstu skotmörk þeirra voru Tí-
betbúarnir, sem voru enn í smá-
virkjum í öngstrætunum handan
dómkirkjunnar. Stjórnendur skrið-
drekanna sveifluðu byssuhlaupun-
um hægt hvern hringinn á fætur
öðrum og hófu svo skothríðina með
því að skjóta 9 kúlum. Þegar reyk-
urinn og rykið var horfið, ginu við
geysistórar eyður í húsaþyrpingun-
um, þar sem kúlurnar höfðu
sprungið, og aðalútvirki Tíbet-
manna var bara rjúkandi rúst. Síð-
an sveifluðu skriðdrekaskytturnar
byssuhlaupunum aftur í áttina til
ÍÍ5
dómkirkjunnar, og skriðdrekarnir
lögðu nú af stað þangað.
Nú hafði tekizt að fylgja nokkur
þúsund flóttamönnum úr dóm-
kirkjunni og húsagarði hennar til-
baka inn í dalinn. En samt voru þar
enn eftir nokkur þúsund menn,
konur og börn. Og þetta fólk bjóst
nú til furðulegrar varnar fyrir
framan dómkirkjuhliðin. Fyrsta
árásin á fólk þetta var gerð af kín-
verskum hersveitum, sem komu
æðandi út á Shagyaristræti, hleyp-
andi af vélbyssum sínum.
í reiðiofsa sínum þrýsti hinn tí-
betski múgur fyrir framan dóm-
kirkjuhliðin sér þéttar saman og
reyndi að mynda þannig lifandi
varnarvegg. Fólkið togaði og reif í
kínversku hermennina, sem rudd-
ust fram. Sumir Tíbetbúar voru
með byssur, aðrir með lurka eða
hnífa. Jafnvel slátrararnir, sem
teljast til hinna útskúfuðu í Tíbet,
komu nú æðandi út úr hverfi sínu
með risastóra hnífa og ógnvænlega
kjötkróka í höndum sér. Múgurinn
mjakaðist áfram í áttina til skrið-
drekanna. Það leið ekki á löngu,
þangað til múgurinn var kominn
að skriðdrekunum. Fólkið réðst
gegn þeim með öllum tiltækum
vopnum, hverju nafni sem nefnd-
ust.
í þrjár klukkustundir samfleytt
tókst Tíbetbúum að hindra fram-
sókn skriðdrekanna til dómkirkju-
hliðanna. Tíbetbúum tókst jafnvel
að brenna einn skriðdrekanna. Kín-
versku vélbyssuskyttunum í Sha-
gyaristræti tókst jafnvel ekki að
brjóta vörn Tíbetbúanna á bak aft-
ur þrátt fyrir geysilegt mannfall.