Úrval - 01.05.1970, Side 120
118
kommúnistar og 15.000 Tíbetbúar
hafi verið drepnir í bardögunum."
Samkvæmt áreiðanlegri tölum virð-
ist sem rúmlega 10.000 Tíbetbúar
hafi ýmist fallið eða verið sendir í
nauðungarvinnubúðir.
En þetta var ekki eina tjónið, sem
Tíbet mátti þola. Fall Lhasa ásamt
fréttum um, að Dalai Lama væri
á leið suður til Indlands, höfðu
þau áhrif, að það hófst fjöldaflótti
í suðurátt. Fjölmargar fjölskyldur,
ríkar sem fátækar, tóku sig skyndi-
lega upp og rifu sig upp með rót-
um úr fyrra umhverfi. Það, sem rak
á eftir þessu fólki, var óttinn við
ógnarstjórn Kínverja. Fólk tók með
sér það litla af eigum sínum, sem
það komst með, og lagði á hina af-
skekktu fjallastíga.
Líkurnar fyrir því, að fólki þessu
tækist að komast til Indlands, voru
" !ar. bví að fæstir þorðu að
halda eftir venjulegum lestastígum.
Minni og afskekktari leiðirnar voru
ókortlagðar. Þeir, sem héldu nú á
fjöllin, máttu alltaf eiga það í
vændum að komast ekki lengra.
Þótt þeir kæmist yfir eitt fjalla-
skarð í dag, gat farið svo, að þeir
fyndu enga leið yfir næsta fjall-
garð.
Enginn mun nokkru sinni vita,
hversu margir Tíbetbúar urðu blátt
áfram úti á þessum flótta. Kínverj-
ar náðu sumum og tóku þá af lífi,
en börn þeirra voru send til Pek-
ing. Sumir sultu í hel eða létust af
kulda o? vosbúð á snævi þöktum
tindum. Margir þeirra, sem komust
suður til Indlands, áttu það aðeins
munkunum í afskekktum klaustr-
ÚRVAL
um að þakka, að þeir sluppu þang-
að heilir á húfi.
Dalai Lama og fylgdarlið hans
náði til Indlands eftir tvær vikur.
Fyrst héldu þeir í áttina til Tsang-
poárinnar, sem er 40 mílum fyrir
sunnan Lhasa. Svo héldu þeir yfir
erfitt fjallaskarð í 17.000 feta hæð.
Þeir höfðu ferðazt næstum hvíld-
arlaust í 17 tíma samfleytt, er þeir
náðu til lítils ferjustaðar við Tsang-
poána.
Þeir vissu, að kæmust þeir yfir
ána, þurftu þeir ekki eins og óttast
eftirför Kínverja, því að um þau
óskaplegu fjalllendi kæmust engar
vígvélar. En þeir voru vissir um,
að Kínverjar mundu senda herlið
til þess að reyna að stöðva flótt-
ann. Því tók öflugt lið Khamba-
skæruliða sér stöðu við ferjustað-
inn. Viku síðar háðu þeir þar ofsa-
lega orrustu við stórt kínverskt
herlið, sem var einmitt að leita
Dalai Lama. Það varð mikið mann-
fall hjá báðum liðum, og ferjan var
sprengd í loft upp.
,.Ósýnilegt afl“ verndaði Dalai
Lama og fylgdarlið hans það sem
eftir var leiðarinnar. Á hverjum
fjallshrygg, í hverju fjallaskarði, í
hverju þykkni rhododendroonrunn-
anna lágu hundruð Khambaskæru-
liði í felum og fylgdust þögulir með
ferðafólkinu. Þeir létu ekkert á sér
bæra, en voru bara á verði eins og
verndarvættir. Þeir sendu skilaboð
frá einum fjallatindinum til annars
þess efnis, að hinn guðlega konung-
ur væri að nálgast. Jafnvel Dalai
Lama sjálfum fannst andrúmsloft-
ið þrungið einhverri dulúð, er hann
hélt áfram ferð sinni, „vitandi, að