Úrval - 01.05.1970, Síða 130
128
TJRVAL
-- í mörgum löndum eiga 75
prósent af öllum tegundum krabba-
meins upptök sín í þeim hlutum
líkamans, sem eru auðveldlega til-
kvæmilegir;
— þó að tíðkanlegar lækningar-
aðferðir séu ekki óskeikular, eru
þær einatt mjög árangursríkar, ef
þeim er beitt nægilega snemma.
Sérfræðingar nefna ýmsar að-
ferðir til að fást við krabbamein.
Ein þeirra er sú að rannsaka frum-
ur í vefjum, sem teknir eru t. d. úr
lungnapípum eða legi. Aðferðin,
sem nefnd er „Pap-prófunin“ eftir
dr. G. Papanikólaú, er meðal hinna
beztu sem nú eru þekktar. Hún
gerir læknum kleift að uppgötva
sjúkar frumur í vefinum og sýna
þannig fram á krabbamein á byrj-
unarstigi.
BJÖRTU HLIÐARNAR
Til að gera varnarráðstafanir
gegn krabbameini sem árangurs-
ríkastar mæla sérfræðingar með
því, að hvert einstakt land komi
sér upp áætlunarmiðstöðvum með
sérþjálfuðu starfsliði. Einnig er
mikilvægt að rekin sé víðtæk, öfl-
ug og ósleitileg upplýsingastarf-
semi. Þeir menn, sem hafa slíka
starfsemi á hendi, verða að vera vel
kunnugir menningarlegum og fé-
lagslegum sérkennum hlutaðeig-
andi þjóðar eða þjóðarbrots, og þeir
verða einnig að taka tillit til hins
djúpstæða ótta, sem einatt tálmar
raunhæfum og árangursríkum ráð-
stöfunum.
Öll upplýsingastarfsemi verður
að leggja áherzlu á björtu hliðarn-
ar á baráttunni við krabbameinið.
Það er alltof algengt, að fólk hafi
ekki trú á því, að nokkuð verði að
gert að gagni, jafnvel þótt sjúk-
dómurinn sé uppgötvaður á byrj-
unarstig'i. Menn verða að gera sér
ljóst, að krabbamein er ekki að-
eins einn sjúkdómur, heldur hópur
sjúkdóma, sem sumir eru erfiðir
greiningar og viðfangs, en aðrir
auðgreinanlegir og auðveldir við-
fangs.
Vert er að taka það sérstaklega
fram, að jafnvel margir læknar eru
ákaflega bölsýnir að því er varðar
krabbamein. Því miður eru þeir oft
illa að sér um nýtízku lækningar-
aðferðir og þær mjög svo bættu
sjúkdómsgreiningar, sem margir
sjúklingar njóta góðs af. Þegar
svartsýnn sjúklingur leitar til böl-
sýns læknis, er varla við því að bú-
ast að honum verði með skjótum
og bjartsýnum hætti vísað til næstu
krabbameinsrannsóknastöðvar.
Sérfræðingar segja að lokum:
— á því leikur enginn vafi, að
sjúklingar, sem þjást af tilteknum
tegundum krabbameins og fá við-
eigandi meðferð, geta vænzt svip-
aðs fjölda æviára og venjulegur,
heilbrigður einstaklingur af sama
kyni og á sama aldri í sama um-
hverfi. Það er ekki rétt, að einung-
is sé hægt að meðhöndla krabba-
mein þannig, að sjúkdóminum sé
slegið á frest, og að eina gagnið að
tímanlegri sjúkdómsgreiningu sé í
því fólgið að lengja líf sjúklings-
ins um nokkra mánuði eða ár. —
Sannleikurinn er sá, að því fyrr
sem sjúkdómsgreiningin er gerð,
þeim mun meiri líkur eru til að
sjúklingurinn nái fullan bata.