Goðasteinn - 01.03.1969, Qupperneq 63
Kjartan Leifur Magnússon:
Bæjarstæðin þrjú
í Hjörleifshöfða
Haustið 1936 flutti Bárður Jónsson bóndi í Hjörleifshöfða burtu
þaðan og gaf upp búskapinn. Enginn sótti um ábúð á jörðinni og
hefir Höfðinn nú (1962) verið í eyði í 26 ár.
Athugi maður þann möguleika, að Höfðinn byggist aftur, er
vissulega fátt, sem bendir til þess, að svo verði, að minnsta kosti
ekki í náinni framtíð. Túnið í Höfðanum er svo lítið, að þó það verði
ræktað að hámarki, mundi það ekki gefa af sér meira en 200 hesta
af heyi, en fáum mun nú þykja lífvænlegt að búa við svo lítinn
heyskap þótt beitarlandið sé mikið og gott. Flestum mun líka þykja
það mikill ókostur, hve bratt er upp Höfðann að túninu, en þar
verður bærinn að vera, því hvergi annarsstaðar er nú bæjarstæði.
En nú vita menn, að í Hjörleifshöfða væri hægt að rækta stórt
tún, því víða hafa menn breytt örfoka sandauðnum í tún. Höfð-
inn á sennilega ekki minna en 7500 hektara lands, sem er sandur.
Ég segi sennilega, því nákvæmlega hefir það ekki verið mælt. En
hvað mikið sem ræktað væri af sandinum, er víst, að næsta jökul-
hlaup frá gjósandi Kötlu mundi sópa öllum gróðri burtu, svo
hvergi sæi strá eftir. Það væri ekki fyrr en eftir nýafstaðið gos, sem
ráðlegt myndi þykja að rækta sandinn kringum Hjörlcifshöfða.
Goðasteinn
61