Goðasteinn - 01.03.1970, Side 8

Goðasteinn - 01.03.1970, Side 8
Þá var stutt í, að ég væri allæs, og á sjöunda ári las cg Njálu um vortíma fyrir gamla vinnukonu, Guðrúnu Sveinsdóttur frá Sandhólaferju. Henni var það góð dægradvöl, og var viðkvæði hjá henni, ef hik varð við lesturinn: „Lestu meira, stelpa mín“! Tvcggja ára aldursmunur var á mér og Gunnari. Hann brýndi mig með að vera búin að læra kverið, þegar ég yrði tíu ára, og setti mér fyrir. Þetta tókst, og hljóp ég þá inn til sr. Jóns og sagði: ,,Nú er ég búin að læra kverið“. Þá fékk ég þessa vísu hjá gamla manninum: Þokki fylgir Þórdísi, þóknun guðs og manna. Bæði handa og bókvísi blíðan prýðir svanna. Nóg var til að lesa í Hala: íslendingasögurnar, Fornaldarsögur Norðurlanda, Iðunn, Eimreiðin, svo að eitthvað sé nefnt. Faðir minn keypti öll blöð, sem þá komu út: Þjóðólf, Isafold, Þjóðvilj- ann, Austra, Bjarka, Island. Móðir mín keypti Kvennablaðið, þegar það fór að koma út. Öllum þessum blöðum var haldið saman frá ári til árs, og allt saup maður þetta í sig. Alltaf var lesið hátt eða kveðnar rímur á vökunni. Gestir tóku þátt í skemmtun og vinnu. Einu sinni var Jón skotti nætur- gestur í Hala ásamt konu sinni. Hann var ágætur raddmaður og kvað rímur fram undir vökulok, en kona hans tók ofan af ull. Pabbi las oft sögur á vökum, þegar annir leyfðu, og stöku sinnum kvað hann rímur. Passíusálmarnir voru alltaf sungnir um föstuna og byrjað að leika undir á orgel við sönginn, þegar kom fram um aldamótin 1900. Ég lærði að spila á orgel 16 ára gömul. Fram á mína daga var sungið á grallarann við messur í Háfskirkju. Eftir einni messu man ég þar með grallarasöng, og oft heyrði ég hann hcima hjá sr. Jóni heitnum. Ekki fannst mér hann skemmtilegur; þetta var einlægur kljásteinasöngur með rykkjum og hnykkjum. Fyrir aldamótin var gott lestrarfélag tekið til starfa í Þykkva- bænum, og lestrarfélagið Þörf var þá í góðu gengi í Vetleifsholts- og Bjóluhverfum. Þau höfðu bæði mikil áhrif til fróðleiks og skemmtunar. 6 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.