Goðasteinn - 01.03.1970, Side 15

Goðasteinn - 01.03.1970, Side 15
Eyrum var hægt að fara sex ferðir á dag. Pabbi fór oft á niilli, en Hannes hlóð úr. Heyskapur var sóttur í Safarmýri. Faðir minn hafði þar stóra skák frá Ólafi í Lindarbæ. Var þá hafður bátur á Kálfalæk, heyið af skákinni flutt að honum og dregið á honum til vesturlandsins. Lækurinn var vatnsmikill en ekki breiðari en svo, að karlmenn- irnir fleygðu tóbaksbauki á milli sín yfir hann. Faðir minn lcigði Traustholtshólma í Þjórsá til slægna af P. Nielsen verzlunarstjóra á Eyrarbakka, eftir að vötnin eyðulögðu hcimaslægjurnar. Þar hafði áður verið bær. Bæjarstæðið var á hóli eða hæð austan til í hólmanum. Önnur hæð var vestar. Óx á þeim skúfelfting. Mýrlendara var sunnan og norðan til. Ekki var legið við í hólmanum en farið á báti á milii. Þarna var svo harðslægt, að til var, að 12 voru sláttumenn en tveir rökuðu. Einu sinni var hlaðið upp hey þarna, en annars var heyið flutt í milli á báti. 1 cngjaferðum áttum við kvenfólkið okkar eigin ístöð, sem voru með tréstigi, en reiðver notuðum við ekkert. Hver maður notaði líka sitt beizli og sömu hnappheldu ár eftir ár, og hver hlutur átti ákveðinn snaga í hjallinum. Svona var reglufestan mikil. Vel var lagt til heimilisins í slátrum og kjöti á ihverju hausti. Gamlir sauðir voru um 100 og veturgamlir um 30. Gömlu sauð- irnir gengu á vetrum inni í Háfsbót, inn undir Frakkavatni. Þar var kvistlendi og kjarngóð jörð. Veturgömlu sauðirnir voru við hús heima við bæ um gjafatímann. GESTIR OG HEIMAMENN Aldrei var gestalaust í Hala. Umferð var mikil frá haustnótt- um og fram á jól, minnzt á vertíð, en þó mun sjaldan hafa liðið dagur svo, að ekki bæri gest að garði. Stokkseyrarfélagsfundurinn var venjulega í vikunni fyrir jólin og áður þurfti að ganga frá öllum reikningum. Tveir og þrír menn voru við uppgjörið með pabba fyrir fundina, oft um lengri tíma. Oftast unnu að því þeir Ólafur Árnason verzlunarstjóri, Einar Árnason í Miðey, Þorsteinn Thorarensen á Móeiðarhvoli og ívar Sigurðsson, kennari. Um fundinn sjálfan voru gestirnir ekki færri en 30, svo vel Goðasteinn 13

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.