Goðasteinn - 01.03.1970, Page 17

Goðasteinn - 01.03.1970, Page 17
auðvitað var velkomin. Ólafur læknir var mikill vinur okkar systkinanna. Hann pungaði oft í okkur sætindum, þegar hann var á ferð. Kjartan var líka góður kunningi okkar allra og sérstaklega vel gefinn maður, sem gaman var að tala við. Pabbi var ekki heima þetta kvöld. Hætt var að dansa, gestunum var boðið til stofu, tekin af þeim vosklæði og þeim unninn beini. Eftir matinn spurði Ólafur læknir mömmu, hvort henni væri ekki sama, þótt fólkið kæmi fram í stofu aftur og stigi dans stundarkorn. Það var sjálfsagt, og Ólafur læknir dansaði með okkur fram á nótt; hann var svo mikið fyrir að dansa, en Kjartan sagði, að dansinn væri uppfundinn af þeim vonda og fór inn í baðstofu til að tala við piltana, sem þar voru. Halldór Jónsson var feykilega söngvinn og söng vel. Hann kunni alltaf eitthvað af nýjum lögum að kenna okkur, þegar hann kom úr verinu um lokin, og við hvert lag lærði hann bassa. Presturinn okkar, hann sr. Ólafur í Kálfholti, var líka mikið fyrir söng, og það kom af sjálfu sér, þegar hann gisti, að setjast við orgelið, og allir, sem sungu, söfnuðust um það til að taka lagið. Samþingsmaður pabba fyrir Rangárvallasýslu var Sighvatur Árnason í Eyvindarholti. Hann var kær gestur hjá okkur. Halldór Jónsson sótti hann austur að Eyvindarholti, þegar leið að þingi, og sótti pabba og hann suður, þegar þingi lauk. Mamma fylgdi þcim suður og kom aftur með Halldóri. Þorsteinn Erlingsson skáld var einn af góðvinum pabba og var nokkrum sinnum gestur hans heima í Hala. Áður hef ég minnzt á Margréti Brandsdóttur, sem var hjá okkur í skjóli dóttur sinnar, Vilborgar Einarsdóttur. Margrét sá fleira en fjöldinn og sagði fyrir um gestkomur og mannalát. Kvöld nokkurt var barið bylmingshögg í eldhúshurðina. Ein stúlkan sagði: „Þetta hefur nú verið hann Páll“, og átti við heimilismann. „Nei“, sagði Margrét, „þetta var nú Benedikt í Unhól“. Ekki þótti það líklegt, því frétzt hafði, að Benedikt væri veikur og ekki ferðafær. Á sama tíma fór Ólöf Árnadóttir í Háfi út að kirkju að ná í þvott af snúru. Sá hún þá Benedikt standa framan Goðasteinn 15

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.