Goðasteinn - 01.03.1970, Page 26

Goðasteinn - 01.03.1970, Page 26
22. Erlendur Björnsson, f. 1805 í Búlandsseli. - Veit ekki um hann annað en það, að 1831 er hann niðursetningur á Borgarfelli, en 1835 vinnumaður á Ljótarstöðum. 23. Björn Runólfsson, f. um 1801, bróðir Jóns í Svín'adal (7). Býr í Jórvík í Álftaveri 1845, kvæntur Þórdísi Guðmundsdóttur. - Veit ekki um niðja þeirra. 24 og 15. ,,Tveir Sigurðar“: a. Sigurður Bótólfsson yngri, f. 1801, bróðir Vigfúsar á Flögu (8). - Bóndi á Ljótarstöðum. Kona hans var Hugborg Runólfsdóttir frá Svínadal (systir Jóns, 7. og Björns 23.). Þau áttu nokkur börn. Meðal þeirra var Þuríður (f. 1840, d. 1916) móðir Stefáns kennara í Litla-Hvammi, Hannessonar og Sigurður (f. 1848, d. 1909) er bjó á Ljótarstöðum eftir foreldra sína. faðir ÁrsæL skólastjóra í Reykjavík. b. Sigurður Árnason, f. 1797, d. 1860, bróðir Árna í Hrífunesi (3). Hann bjó í Hvammi og var kona hans Halldóra Runólfsdóttir, systir Oddnýjar á Bú- landi (2) og Gunnsteins og Þórhalla (15 og 16). Meðal afkomanda þeirra eru Sigurjón á Borgarfelli og hjónin í Hvammi, Bárður og Sigurrós. Tvær vísur Stingur angrið hringa heið hungrið stranga spennir. Syngur Manga, löngum leið, lungun ganga í henni. Óvíst um höfund. Ef þú hrellin ert með rellu, eykur hrelling frekast sig. Kumla Elli vaskur á velli verður á felli og tekur þig. Þessi vísa er líklega eftir Einar á Jaðri í Þykkvabæ, ort um 1840. Erlendur Ólafsson í Kumla á Rangárvöllum var frægur smiður. Þekkjast enn t. d. beizlisstengur smíðaðar af honum - Vísurnar eru teknar eftir handriti Einars Einarssonar frá Berja- nesi. 24 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.