Goðasteinn - 01.03.1970, Page 52
verða að það væri grundvöllur innlendrar fræræktar. Liðtækasti
maðurinn í þessu máli reyndist vera Gísli Guðmundsson gerla-
fræðingur, því að hann lánaði mér endurgjaldslaust rannsóknar-
stofu sína og hitaskáp og síðar fullkomið spírunaráhald. Ég
hafði um sumarið byrjað að safna grastegundum víðsvegar í ná-
grenni Reykjavíkur og gróðursett þær í garði nr. 10 í Aldamóta-
görðunum. Einnig fékk ég það fræ, sem Gróðrarstöðin aflaði
þetta sumar.
Sumarið 1921 var að tilstuðlan Metúsalems Stefánssonar og
Valtýs Stefánssonar safnað hér grasfræi af þrem tegundum, tún-
vingli, vallarsveifgrasi og snarrótarpunti. Fræ þcssi voru rann-
sökuð á Statsfrökontrollen í Kaupmannahöfn árið 1922 og reynd-
ust allvel. Hcldur voru þau þó seinni til spírunar en tilsvarandi
erlend fræ, en þyngd og stærð var heldur meiri eins og síðari
rannsóknir hér heima hafa sýnt, þegar fræið nær eðlilegum þroska
í góðu árferði.
Sumarið 1924 var ég aftur í Gróðrarstöðinni við tilraunastörf
og heyskap. Ég hafði haft mcð mér frá Noregi tvö afbrigði af
byggi, sem ég ætlaði mér að reyna að rækta hér heima og hóf
með þeim sáðtímatilraunir. Annað afbrigðið var Dönnesbygg frá
Norland í Noregi. Reyndist það vel þegar í upphafi. Það hefur
nú verið ræktað hér á landi í samfleytt 47 ár og alltaf náð það
miklum þroska, að hæft hefur verið til útsæðis. Sáðtímatilraunir
voru gerðar í fjögur sumur í reit nr. 10 í Aldamótagörðunum í
Reykjavík og voru þær upphafið að þeim kornyrkjutilraunum,
sem ég hef fengizt við æ síðan.
Sumarið 1924 fól Búnaðarfélag íslands mér að rannsaka gróð-
ur á túnum í Borgarfirði og fór sú athugun fram fyrstu dagana
í júlí. Um þessar gróðurrannsóknir skrifaði ég skýrslu, sem var
svipuð skýrslu þeirri, er ég hafði gert um gróðurathugun mína á
túnunum í Reykjavík.
Niðurstaðan var þó nokkuð á annan veg, því að snarrótin
reyndist meira útbreidd vestan Hvítár en austan, og blásveifgras
var víða á miður vel teðjuðum túnum. Rannsóknir þessar lögð-
ust fljótt niður, því að fjármagn skorti til að halda þeim áfram.
Að öðru leyti vann ég í Gróðrarstöðinni þetta sumar og var
50
Goðasteinn