Goðasteinn - 01.03.1970, Side 55

Goðasteinn - 01.03.1970, Side 55
fyrir nokkru lokið kandidatsprófi við Landbúnaðarháskólann í Kaupmannahöfn. Var hann vissulega vel að sér bóklega, en ég held að ég hafi haft meiri verklega æfingu, og víst er um það að hann kom ekki með neitt nýtt á þessu sviði sem ég hafði ekki kynnt mér rækilega. En um allt má deila og ekki sízt, þeg- ar um bita og sopa er að ræða. Endirinn varð sá, að ég hélt minni ráðningu og tók við þeim störfum, er hnigu að því að skapa tilraunastöðina á Sámsstöðum. Og það skal tekið fram, að við Guðmundur Jónsson, síðar skólastjóri á Hvanneyri, urð- um engir óvinir og hafa hin beztu skipti jafnan verið með okkur. í apríl 1927 seldi ég bú mitt í Reykjavík á opinberu uppboði og fékk fyrir það talsverða upphæð, sem ég hafði umfram það fé, er ég þurfti til að framfæra heimilið. Sverrir bróðir minn var þá í 5. bekk Menntaskólans. Hann varð stúdent vorið 1928. Niðurlag í næsta hefti. Vísa Eiríks í Karlsskála Þið hafið sofið vel og vært, víst er ánægt hyggju bú. Ljós upp runnið ljómar skært. Lofið þið drottin piltar nú. Goðasteinn 53

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.