Goðasteinn - 01.03.1970, Side 61

Goðasteinn - 01.03.1970, Side 61
Glæsibæ og áður ritstjóra í Reykjavík. Hún var börnum sr. Kjartans, þremur, hin bezta stjúpa og þeim mjög kær. Prestshjónin ungu hófu búskap í Holti, svo sem sjálfsagt var á þeim tíma - að prestar rækju bú. Holtið var kostajörð, en þurfti mikils mannafla. Varð fjölmcnnt heimili hjá þeim og með vaxandi barnahópi þeirra hjóna eitt hið fjölmennasta í sveitinni Frú Sigríður var atgerfiskona og sómdi sér vel í prestskonustöð- unni, var uppalin í Holti, nákunnug umhverfinu og kunni tök á þcini verkefnum, sem fyrir lágu. Þó sr. Jakob væri uppalinn við sjávarsíðuna, lá fljótlega opið fyrir honum í aðalatriðum starf bóndans. Hann vann að bústörfum með verkafólki sínu eftir því scm hann mátti við koma vegna embættis síns. Atorka hans og kapp kom fram í hverju verki. Yfir hcimilinu var léttur blær og þótti gestum gott þar að koma. Frúin lék á orgel og söngvin voru þau bæði. Heimilið var í þjóð- braut. Þar var viðkomustaður póstsins og þar kom símstöð, er lögð var símalínan til Víkur 1914. Við prestinn áttu að sjálfsögðu margir erindi, cg var mjög gestkvæmt hjá honum. Vorið 1914 réðst til bús með sr. Jakobi Reykvíkingur, Guð- brandur Magnússon prentari, kunnur ungmennafélagi, hafði ver- ið sambandsstjóri UMFÍ. Höfðu þeir um árabil verið nákomnir vinir. Þeir höfðu með sér félagsbú og var samvinna þeirra hin bezta þau næstu ár. Guðbrandur fluttist aftur til Reykjavíkur ár- ið 1917 og varð þá um stundarsakir ritstjóri Tímans - fyrsti rit- stjóri hans, því blaðið var þá að hefja göngu sína. Fljótlega tók við því Tryggvi Þórhallsson, síðar forsætisráðherra og stýrði því næsta áratuginn, scm kunnugt er. Sr. Jakob mun hafa verið kosinn í hreppsnefnd Vestur-Eyja- fjallahrepps eftir 1920 og sýslunefndarmaður var hann síðustu árin, sem hann dvaldist í Holti. Hann fór í framboð í sýslunni fyrir Framsóknarflokkinn við alþingiskosningarnar 1927 en ekki náði hann kosningu, sá einlægi umbótamaður. Á skólaárum sínum var hann framarlega í flokki um stofnun ungmennafélagsskaparins í Reykjavík og hann var meðal þeirra áhugamanna í þjóðmálum, sem síðar stóðu að stofnun Fram- sóknarflokksins. Goðasteinn 59

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.