Goðasteinn - 01.03.1970, Side 73
Skemman endurbyggð. Ljósm. Gtiðgeir Magnússon.
reiðar, sem flutti skemmugrjótið, gat ekki grasað honum, og situr
hann enn á sínum stað.
Skemmunni var markaður grundvöllur á sléttum fletí norður
frá safnhúsinu í Skógum með stefnu frá norðaustri til suðvesturs.
Var þá við það miðað, að þilstafn hennar horfði rétt við gest-
um á leið beirra austur að safnhúsinu, stefnan horfir einnig und-
an verstu veðrum og nálægð safnhússins sjálfs veikir þann veg
minnst svip skcmmunnar. Vandi er að gera torfhús og steinhús
svo að nábúum, að bæði megi vel við una. Takmörk bygginga-
lóðar hlutu hér nokkru um að ráða. Við það er einnig miðað,
að eitt eða fleiri torfhús rísi, áður en langt um líður, við hlið
skcmmunnar.
Byggingamenn fékk ég þá, scm bezt var völ á undir Austur-
fjöllum, þá bræðurna Bárð Magnússon bónda í Steinum og Tóm-
as Magnússon bónda í Skarðshlíð. Fyrri tíðar menn höfðu mest
handaflið eitt til hjálpar við húsagerð, en nú var völ dráttarvélar
til að lyfta grjóti, sniddu og mold í veggi. Notað var gamla
skemmugrjótið svo langt sem það náði, en nokkuð var sótt að.
Goðasteinn
71