Úrval - 01.04.1977, Blaðsíða 14
12
ÚRVAL
seint er að skera upp, þegar læknis er
loks leitað.”
Auðvitað er best, að lungna-
krabbamein finnist, meðan enn er
um lítil sem engin einkenni að rseða.
Mikið reykingafólk ætti því að láta
gegnumlýsa lungun reglulega og
einnig láta fara fram smásjárrannsókn
á uppgangi úr lungum. í sumum
tilfellum getur lungnakrabbamein
dulbúist sem aðrir sjúkdómar, t.d.
síendurtekið lungnakvef, endurtekin
lungnabólga, verkur í annarri öxl-
inni, hjartakveisa (verkur í brjósti
tengdur hjartakvilla) eða talsverð
stækkun á svæði því umhverfis
fíngurneglur, sem nefnist „clubb-
ing.” Dr. Cahan segir enn fremur:
,,Ef ekki reynist unnt að fínna orsök
einhverra þessara einkenna, ætti að
gegnumlýsa lungu sjúklingsins. Þetta
er sérstaklega mikilvægt, sé við-
komandi mikill reykingamaður. ’ ’
Húðkrabbamein. Algengasta
krabbameinið er húðkrabbamein.
Banvænasta tegund húðkrabbameins
nefnist „melanomas” og er stundum
hægt að sjá einkenni þess sjúkdóms
með berum augum í 5-15 ár eða
jafnvel enn lengur, áður en hann
tekur að ráðast á vefina undir
húðinni. Venjulega er hægt að lækna
sjúkdóminn á þessu stigi. En samt
dóu 3500 manns úrþessum sjúkdómi
í fyrra í Bandaríkjunum og 1500
aðrir úr öðmm tegundum húð-
krabbameins.
„Melanomas-húðkrabbamein hefst
oftast með venjulgri freknu eða
dökkum bletti,” segir dr. Martin C.
Mihm, húðsjúkdómsgreiningarfræð-
ingur við Hið almenna sjúkrahús
Massachusettsfylkis og Læknadeild
Harvardháskóla. „Sjúklingurinn lít-
ur svo lengi á staðinn í speglinum eða
í baði, að hann hættir í rauninni að
taka eftir þessu. Það er því ekki víst,
að hann taki eftir því, þegar þetta
byrjar að breyta um lögun eða lit.”
Þýðir þetta, að skoða verði allar
freknur og aðra dökka bletti á
hverjum degi? Nei, til allrar
hamingju þarf þessi ekki. Oft eru það
litarbreytingar, sem gefa til kynna
tilvist „melanomas-húðkrabba-
meins.” Farið strax til læknis, ef
rauðir, hvítir eða sérstaklega ef bláir
flekkir taka að myndast í gömlum
dökkum bletti á líkama þínum
(móðurmerki eða fæðingarbletti).
Einnig þarf að láta lækni athuga
slíka dökka bletti, sem em allir
blásvartir, blágráir eða blárauðir að
lit eða hafa ójafna áferð. Dr. Mihm
segir enn fremur: „Venjulega er
hægt að komast á snoðir um tilvist
húðkrabbameins nógu tímanlega, ef
menn em á varðbergi gegn óvenju-
legum einkennum eða litarbreyting-
um á „fæðingarblettum” eða
„freknum. ”
Krabbamein í ristli og endaþarmi.
100.000 Bandaríkjamenn sýkjast af
þessari tegund krabbameins árlega og
sjúkdómurinn verður meira en
helmingi þeirra að bana. Samkvæmt
upplýsingum Bandaríska krabba-