Úrval - 01.04.1977, Page 50

Úrval - 01.04.1977, Page 50
48 ÚRVAL Og hvílíkur dagur! Til beggja hliða risu dyngjur af sefi og reyr allt upp í fimm metra hæð yfir okkur, og fyrstu geislar ársólarinnar skullu á frjó- þungum toppum þeirra. Inn á milli sást smávöxnum ísfuglum bregða fyrir, þar sem þeir skutust út og inn á milli plantnanna, einn silfurhegrinn eftir annan hóf sig til flugs og endrum og eins rauf karfi sléttan vatnsflötinn með dálitlum skvett. Við sigldum inn á breitt lón, þar sem flokkar af öndum, gæsum og seföndum lyftu sér til flugs, en kríur og mávar héldu áfram að kafa glæsilega eftir smáfiski. Við drápum á vélinni og eina hljóðið sem heyrðist var busl fuglanna, þar til þeir róuðust aftur, og við runnum út í eitt við umhverfi óshólmanna. Nú tilkynnti Ivan: , ,Það er kominn rími til að við öflum okkur vista.” Þar með tók hann að draga inn netin, sem hann hafði lagt kvöldið áður. ,,Nú skulum við sjá, hvað óshólm- arnir bjóða upp á.” Að fótum okkar helltist glansandi lækur af hvers konar vatnakörfum, sem þó eru aðeins brot af þeim 75 mismunandi flskategundum, sem í óshólmanum eru. Þetta er eitt gjöfulasta fersk- vatnssvæði Evrópu á fisk, þar veiðast upp undir tíu þúsund tonn á ári. Af öllum þessum fiskum er merkilegasti fiskurinn sá sem gengur undir nafninu beluga, en svo heitir hin stórvaxna Svartahafsstyrja, sem veið- ist þar sem ferskt vatn Dónár mætir saltvatni Svartahafsins. Stærstu styrj- urnar eru hálft annað tonn á þyngd og kvenfiskurinn getur gefið allt af 100 kíló af fínasta kavíar. ,,Frá sjónarmiði náttúrukönnuðarins er belugan stórkostlegastur allra físka,” sagðiAlexandru. ,,Hann eraftegund, sem til hefur verið í 65 milljónir ára.” Við sigldum fram hjá ey eftir ey umkringda reyrgresi, fikmðum okkur varfærnislega eftir álum, sem vom svo mjóir að við urðum næstum að höggva okkur leið. Á þessum fjölmörgu smáeyjum vom bæði refir og villikettir — og umfram allt villisvín. Þessi dýr verða svo mögur á þeim litlu landskikum, sem þau hafa til umráða, að þau teljast til sérstakra óshólmategunda. Við sefræturnar var litasíhverfa vatnablóma; skærblá mynta, þokkafullt og sviflétt burkna- lauf, vatnaliljur með miklu af grænum blöðum og hvítum blóm- um, sem opnuðust móti ársólinni. „Hefurðu nokkurn tíma séð svona tært vatn fyrr?” spurði Alexandm. Það hafði ég ekki. En, spurði ég, hvað með orðróm- inn um, að ósahólmarnir væm í hættu? Það hafði verið orðrómur um að reyrinn væri rányrktur til pappírs- gerðar — til mikils skaða fyrir fuglalífið. Þar að auki hafði fugla- veiðin aukist stórlega að sögn. Og loks vom margar nýjar verksmiðjur í Rúmeníu og öðmm löndum á leið Dónár, sem menguðu vatnið í fljótinu. ,,Það er ekki lengur rétt,”
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.