Úrval - 01.04.1977, Page 77
AÐHLÁ TURSEFNI OA T HILL
75
lyfti upp forsíðuforminum og lét
hann út á borð. Ég opnaði forminn
og fór að leggja af meðan Clyde, sem
enn var að velta því fyrir sér hvort ég
vissi hvað ég var að gera, kom m'eð
tvö ný skip af nýrri setningu,
tilbúinni með fyrirsögnum og öllu.
Við brutum þessa nýju setningu um,
lokuðum forminum, settum hann
aftur í vélina og prentuðum sex blöð
með þessari forsiðu.
Fimm eintök fór ég með upp í
skrifstofuna mína og lokaði inni í
peningaskápnum. Sjötta blaðinu
pökkuðum við inn handa hæstvirtum
Nat Caxton, M.C., House Office
Building, Washington DC. Þegar ég
hafði fullvissað mig um, að ekkert
eintak af hinni raunverulegu útgáfu
hefði slæðst með til hans, setti ég
sérútgáfuna í póstpokann ásamt
öðrum blöðum.
Það sem ég hafði gert var að
hagræða dálítið fréttunum í sérút-
gáfunni, sem fór til þingmannsins.
Þar voru fréttir um að nokkurn
veginn helmingur betri borgara í Oat
Hill hefðu orðið fyrir einhvers konar
skakkafalli eða einhverju öðru frétt-
næmu.
Arthur og Agnes Struthers, sem
höfðu verið gift í 35 ár án þess að
verða barna auðið, áttu að hafa
eignast son, sem skírður var Nat
Caxton Stmthers. Jonathan Carp,
bankamaður, hafði misstígið sig á
gangstéttarbrún og fótbrotnað, þegar
hann var að ná í 25 senta pening, sem
hann hafði séð í göturæsinu. Eldsvoði
hafði geysað við suðurenda dóm-
torgsins. Hinar þrjár hliðarnar björg-
uðust aðeins fyrir hetjulega baráttu
sjálfboðaliðssveitar brúnaliðsins. Sam
Brandy, slökkviliðsstjóri, hafði veikst
af reyk og hita þar sem hann stóð við
brunaslönguna, en var nú á batavegi.
John Honeycut, 68 ára gamall
piparsveinn í Oat Hill, hafði gengið
að eiga unga ekkju frá Houston.
Jimmie Hines, sem hafði hætt í
gagnfræðaskóla fyrir tveimur ámm af
því honum fannst kúluspilið í Dick’s
Pool Hall skemmtilegra en skóla-
bækurnar, hafði orðið bekkjardúx.
Þið getið trúlega ímyndað ykkur
áfallið og mglinginn, þegar bréfum
frá Caxton þirígmanni fór að rigna
yfír Oat Hill, strax í næstu viku.
,,Kæri Jonathan,” stóð í bréfinu
til bankamannsins. ,,Mér þótti mjög
leitt að heyra um þetta slæma slys,
sem henti þig. Ég vona, að fótbrotið
grói vel og þú verðir kominn aftur til
starfa innan skamms. Landið þarfnast
heilbrigðra og traustra bankamanna
eins og þín til að þjóna fólkinu í
Atlhahéraði.”
„Hvaða slys er hann að þvaðra
um?” fumaði Jonathan Carp. ,,Fót-
brotið grói vel? Er helvítis gaukurinn
orðinn snarvitlaus?”
„Eldur?” sagði Sam Brady. ,,Hér
hefurekki kviknað í öskubakka í þrjá
mánuði! ”
„Giftur!” þrumaði Honeycut pip-
arsveinn. „Nú held ég væri rétt að
skoða inn í hausinn á Caxton
gamla!”