Úrval - 01.04.1977, Blaðsíða 110
108
ÚRVAL
og annan afmælisdaginn sinn, 28.
janúar 1974, sigraði hann Joe Frazier
örugglega í tólf lotu leik í Madison
Square Garden. Hann virtist ánægð-
ur með frammistöðu sína. Eftir
leikinn fékk hann sér ís og gortaði:
„Lít ég út fyrir að vera 32 ára?”
Nú var Foreman undir þrýstingi.
Hann varð að sanna, að hann gæti
sigrað AIi. Það þurfti margra mánaða
vinnu hinna slungnu aðstoðarmanna
AIis að koma því í gegn. Smám
saman komu þeir saman stórkostleg-
ustu eins kvöld skemmtun í sögunni.
Svo mikla peninga þurfti til, að
aðeins land, sem horfði ekki í
peninginn til þess að beina til sín
alheimsathygli hafði efni á þessu.
Fyrir valinu varð Kinshasa, höfuð-
borg hins nýja, svarta ríkis í Afríku,
Tsaíre.
Nú er talið, að fjórðungur alls
mannkyns hafí séð þennan atburð,
ýmist á staðnum, með beinu
sjónvarpi, að myndsegulböndum eða
kvikmyndum. Anthony Quinn, leik-
ari, sem var að vinna við upptöku
kvikmyndar í Tripoli, hefur sagt frá
því, hvernig múhammeðstrúarmenn
meðal áhorfenda báðu til Allah fyrir
keppnina og hlupu til og kysstu á
skerminn, meðan Ali leyfði Foreman
að berja sig, áður en hann gerði
ofsafengna gagnárás sína. í áttundu
lotu, þegar Ali sló Foreman niður,
ætlaði allt um koll að keyra um allan
þriðja heiminn af fagnaðarlátum.
Mannfjöldinn dansaði slöngudans á
götunum í Afríku og Asíu, í íran
fögnuðu leigubílstjórarnir sigri Alis
með því að taka ekki greiðslu af
farþegum sínum.
HVAÐ ER FRAMUNDAN?
Ali hóf síðara veldisskeið sitt sem
heimsmeistari í þungavigt með þeim
glæsibrag, sem hann hafði ekki
hlotið þegar hann varð meistari í hið
fyrra sinn. Tveim dögum eftir
sigurinn kom hann til Chicago,
borgarinnar, sem ekki vildi leyfa
honum að keppa innan marka sinna
eftir það sem hann lét sér um munn
fara um Víetkong. Að þessu sinni.var
borgarstjórinn til staðar til að heiðra
hann. Viku seinna var hann kominn
til fæðingarborgar sinnar og gaf þá
þessa yfirlýsingu: ,,Louisville er
merkasti staður heimsins. Hún hlýtur
að vera það, því ég er héðan.”
Mánuði síðar var hann kominn til
New York til að taka þátt í
„Muhammad Ali deginum.”Og 10.
desember 1974 tók Ford forseti á
móti honum í Ávölu stofunni í
Hvítahúsinu. ,, Meistaratitillinn ’ ’,
sagði Ali, ,,er hámark alls.”
HANN GAT ALDREI á sér setið
að kyssa börn og kela við þau. ,,Þú
skalt muna þetta alla ævi. Pabbi þinn
og mamma minna þig á það, ef þú
gleymir því, og sýna þér myndina:
Það var heimsmeistari, sem kyssti
þig”
Og hann bætti gjarnan við: ,,Einu
sinni komjoe Louis til Louisville og
hallaði sér upp að símastaur á