Úrval - 01.04.1977, Page 118
116.
URVAL
Hverju máli skiþtir það, að ósónið
verður minna?
Venjulega nær töluvert af útfjólu-
bláu ljósi til jarðar, þar sem það
myndar sólbruna og stöku sinnum
húðkrabba. Sú aukna geislun, sem
kemst í gegn, eftir því sem ósónlagið
rýrnar, mun leiða til aukningar
húðkrabba. Þar sem ósónið breytir
geisluninni í bita, getum við líka
búist við breytingu á hita og loftslagi.
Hvaða áhrif breytingin getur haft á
lífverur almennt, frá nautgripum og
grösum niðurí svif hafsins, eru menn
núna fyrst að byrja að reyna að sjá
fyrir.
Er nú þegar einhver skaði skeður?
Við teljum, að hálft til heilt
prósent ósónlagsins sé ónýtt nú
þegar. Þetta eykst upp í sjö til 13
prósent á næstu öld, ef haldið verður
áfram að hleypa freoni út í
andrúmsloftið í sama mæli og nú.
Þessa stundina eru það næstum
milljón tonn á ári, sem hleypt er út í
andrúmsloftið. Og megnið af því
kemur úr úðabrúsum.
Eru til veigamikil gagnrök gegn
þessari kenningu?
Fullyrt var af hálfu efnaiðnaðarins,
að ekki væri sannað að freon kæmist
út í stratósferuna, þetta væru þara
getgátur af okkar hálfu. En nú
höfum við hundruð mælinga á bak
við okkur, sem sanna, að þar er
freon.
Þýðir það, að ósamkomulagið nú
beinist ekki að kenningu ykkar,
heldur um það að hve miklu leyti sé
nauðsynlegt að banna freon sem
þrýstiefni?
Já, það held ég. Það er almenn
vísindaleg samstaða um hætturnar —
jafnvel þótt samstaða sé ekki um hve
mikil hættan sé. Staðfesting aka-
demíunnar á niðurstöðum okkar
getur þó haft úrslitaáhrif á þetta.
Hún hefur gefið í skyn, að bann
muni verða óhjákvæmilegt.
Af hálfu efnaiðnaðanns er ennþá
krafist ,,nánari rannsókna”. Er það
nauðsynlegt?
Allt frá upphafi hefur úr þeirri átt
verið heimtað að rannsóknir yrðu
gerðar í tvö eða þrjú ár í viðbót. Það
er auðvitað satt, að árið 2000 vitum
við meira um þennan vanda en við
vitum nú. En ég mæli ekki með því
að við bíðum fram til ársins 2000
með að leggja bann við notkun
freons í úðabrúsa.
Getur sá tími komið, að það verði
of seint að hætta?................
Það er ómögulegt að segja fyrir
um, því áhrifin verða með seinkum.
Freon þarf langan tíma til að ná út í
stratósferuna. Þótt þann gengi í gildi
nú á þessari stundu, myndi þynning
ósónlagsins halda áfram heilan
áratug, því svo langan tíma tekur það
freonið, sem nú þegar er komið út í
andrúmsloftið, að ná þangað út.
Getur ósónið endurnýjað sig?
Ósón ummyndast jafnt og þétt og
breytist af náttúrlegum orsökum. En
ef freon er til staðar, breytist það fyrr