Goðasteinn - 01.09.2013, Page 77

Goðasteinn - 01.09.2013, Page 77
75 Goðasteinn 2013 skemmtilega samverustund. Á Staðnum var messað annan hvern sunnudag. Kom hún alltaf til kirkju eða því sem næst, eins og allur almenningur í þá daga. Staldraði hún þá við og spjallaði við fólkið eftir messu, öllum til ánægju. Hún gekk alltaf með gleraugu með breiðum látúnsspöngum og ekki skipti hún um gleraugu þegar hún las, þau dugðu henni til alls og entust henni alla tíð. Í þá daga var siður að fara í orlofsferðir til kunningjanna, sjerstaklega var það vinnufólk sem fjekk að fara á haustin, eftir mestu annirnar, til bestu kunn- ingja sinna og vera þrjár nætur, vóru það kallaðar orlofsnætur, og húsbændur flestir álitu sjer skylt að leyfa það. Ekki vissi jeg til að Guðrún færi í þannig ferðir nema einstöku sinnum út að Kiðjabergi og Odda til þess að heimsækja gamla nágranna, frú Guðrúnu, áður prófastsfrú á Staðnum og Soffíu dóttur hennar á Kiðjabergi. Það hefur nú verið heyrandi þegar þær nöfnurnar vóru að tala saman, frú Guðrún var held jeg önnur skemmtilegasta kona sem jeg hef kynnst, en alltaf tel ég Guðrúnu á Flókastöðum fremsta. Hún hafði það fyrir sið að koma einusinni að haustlagi á bæina í kring og dvelja daglangt. Mikil var gleðin þegar sást til hennar koma vestan túnið. Það var reglulegur hátíð- isdagur. Hún sagði alltaf sögur þennan dag, og það var hrein unun að heyra hana segja frá, hún ljek svo skemmtilega efnið í sögunni að öllum þótti gaman, eða bætti inn í smá athugasemdum sem krydduðu söguna. Það vóru þjóðsög- ur og æfintýri sem hún sagði, svo sem: Sagan af Kisu kóngsdóttur, Sagan af Álagaflekk, Hnoðra, Þorsteini glott, Rautt hnoða, Hrossahnappur, trútur og trimbiltrútur, Búkolla og fleira. Við heyrðum aldrei allar hennar sögur, því hún fór eftir pöntun, og krakkar vilja alltaf heyra söguna sem þeir kannast við, svo það verða oftast sömu sögurnar, sem maður heyrði. Jeg sje þetta allt eft- irá. Við pöntuðum þessar sögur, í hvert sinn sem hún var á ferð. Og dagurinn tekur enda og fleiri komast ekki að, Þessar sögur sagði hún okkur stundum allt á einum degi og hafði þó tíma til þess að tala við hjónin um daginn og veginn, skáldskap, ritgerðir í tímaritum sem hún var nýbúin að lesa, ættfræði, merka menn, Íslendinga og annarra þjóða menn, gamlar sagnir og fornsögur, og margt af ýmsu tagi einsog gengur. Þetta heyrði maður undir væng, og þótti skemmtilegt því allt varð skemmtilegt hjá henni, en þó vonaðist maður eftir að sögurnar færu að koma, en af því að allir vildu hlusta á þær, varð eitthvað að aka seglum eftir vindi og segja þær helst þegar allir gátu verið við. Ef til vill eina og eina fyrri part dagsins, en aðallega í rökkrinu og vökunni. Þá sat hún oft með ull í keltunni og táði um leið og allir dáðust að tásunni, hún var einsog reykur eða þoka. „Það er af því jeg átti svo fríðan mann“ sagði hún og brosti. Þegar hún sagði söguna af Hnoðra og komið var að því að hann var búinn að fylla alla kóngsins
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1974

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.