Skógræktarritið - 15.12.1998, Blaðsíða 15
kenna við dreifingu en ræktun.
Áhugamaðurinn, sem hefuroft
fremur lftið land en stundum
talsverðan tíma, ætti nefnilega
ekki að nota gróðursetningarstaf
nema hann hafi eytt grasi af smá-
blettum áður. (12. mynd)
Nií er komið að því merkilega atriði
að hér á landi tala menn oft um skóg-
r°ekt í belg og biðu. Á fræðslufundi
koma frððir menn og tala ísömu
andrá um rœktunarhœtti sem henla
v>ð ræktun nytjaskóga (útlöndum og
ræktunaraðferðir sem eiga að gagnast
áhugamönnum með smáræktun norð-
Urd Islandi. Þetta tvennt er gerólíkl og
ruglar áhugamanninn. Áhugamaður-
lun með smáræktun sina getursinnt
henni af miklu meiri natni en sá aðili
sem stendur fyrir ræktun ístórum stíl.
Það er líka miklu brýnna mál fyrir
óhugamanninn en skógræktarfélagið
hans að ná gróðri sínum ískjótan
v°xt; góður ársvöxtur er stolt ræklun-
armannsins og hvetur hann til frekari
ræktunar. Þess vegna á áhugamaður-
lnn að nota búfjáráburð, tilbúinn
áburð og graseyðingarlyf í langtum
stærri stíl en skógrœktarfélagið hans,
afþeirri einföldu ástæðu að þetla er
daegradvöl hans og hjartans mál.
Því hefur verið lýst hvernig
Þoundup gefur færi á skynsam-
legn notkun tilbúins áburðar við
skógrækt á grónu landi, en eitt er
ótalið enn. Á hverju hausti þrosk-
af gróður af flestu tagi ofgnótt
ræja með því örlæti sem náttúr-
unni er eiginlegt. Þau berast víða
°g það byrjar að spretta upp úr
auðu blettunum kringum trjá-
Plönturnar þegar líður á annað
sumarið. Þá er skynsamlegt að
úða aftur með Roundup á þriðja
sumri; sú aðgerð endist meðan
tilbúinn áburður er borinn að
Plöntunni. Þegar hin unga planta
befur staðið fjögur sumur á fram-
tíðarstað sfnum og notið áburð-
ergiafar og graseyðingar, er
óhætt að fullyrða að hún er
bngtum vaxtarmeiri og hraustari
en hliðstæð planta sem engrar
aðstoðar naut.
Roundup er ódýr og fyrirhafn-
arlítil lausn. Mér sýnist að það
kosti aðeins 2-3 krónur að halda
grasi frá trjáplöntu í 4 ár.
Skjól
ísland er berangursland, nagað
niður í rót og kjarrgróður víðast
eyddur fyrir löngu. Skógarplöntu
bíða erfið örlög, sé henni stungið
í jörð á berangri þar sem ekkert
afdrep er. Talsverðu munar þó á
barrplöntum og blaðgróðri í
þessu tilliti. Blaðplantan fellir
laufskrúð sitt í fyrstu frostum, en
greni og fura þurfa að halda barri
sínu milli ára. (13. mynd)
Bakkaplantan er viðkvæm eins
og hvítvoðungur þegar hún er
tekin úr hólfi sínu í bakkanum.
Hún er efnislítil og lætur fljótt á
sjá, ef illa næðir um hana. Fyrst
visna brum og greinar, en svo
getur farið að meginhluti plönt-
unnar þorni upp. Á vetrum getur
skafbylur valdið miklum
skemmdum á ungum gróðri.
Reynt hefur verið að bregðast við
þessum vanda með þéttri gróður-
setningu, en hún leysir hann
aðeins að litlum hluta og er þar
að auki meingölluð eins og áður
hefur verið bent á.
Nú er það svo að greni og fura
eru verr stödd en blaðgróður í
þessu tilliti af þvf að þessar teg-
undir þurfa að halda barri sínu
milli ára. Við treystum blaðgróðr-
inum til að lifa þetta af en snúum
okkur að þvf að leysa vanda
ungra barrplantna sem áhuga-
menn vilja rækta upp í landi sínu.
Eftir vonda aðkomu tvö eða
þrjú vor komst ég að þeirri niður-
stöðu að það yrði að búa barr-
plöntum skjól til þess að þær
ættu Iffsvon á berangrinum. Það
kostaði nokkurt átak að hafa sig
upp í þetta, bæði af því að trjá-
skjól úti á víðavangi voru nánast
óþekkt á íslandi og þóttu bjána-
leg, og einnig vegna þess að
óljóst var f fyrstu hvers konar
skjól hentuðu best.
12. mynd. Ellefu ára ræktunarmaður
og sex ára sitkagreni, ágúst 1994.
Skjólið hjá plöntunni lætur ekki mik-
ið yfir sér, en það nægði til að
vernda plöntuna á hvítvoðungsskeiði
hennar fyrsta veturinn. Plöntunni var
stungið í óblandaðan búfjáráburð og
kastað að henni blákorni fimm sinn-
um. Án skjóls og búfjáráburðar hefði
plantan drepist á fyrsta vetri. Hefði
hún ekki fengið blákorn, næði hún
drengnum sennilega í hné, þótt hún
hefði notið skjóls og búfjáráburðar.
Það er heildin sem gerirgæfumun.
j j' i
5 :« ■ *
»
13. mynd. V-laga skjól, ágúst 1994.
Þetta eru frábær skjól sem hraða
vexti plöntunnar verulega; þau
krefjast nokkurs efnis, svolítillar
vinnu og eru einnota.
SKÓGRÆKTARRITIÐ 1998
13