Skógræktarritið - 15.12.1998, Síða 106

Skógræktarritið - 15.12.1998, Síða 106
ánægju. Voru því víða í vexti og vaxnir upp umfangsmiklir og há- vaxnir skógar, sem börn og ung- lingar höfðu gróðursett. Ég varð að sjálfsögðu mjög hrifinn af þessu og ákveðinn í að kynna þetta strax heima og hvetja ákveðið til, að fræðsluyfir- völd okkar gæfu sem fyrst heim- ild til hins sama: að elstu börn og unglingar fengju að vinna einn fagran vordag að gróðursetningu með umsjón kennara sinna. Allir nemendur munu áreiðanlega fagna því og eiga þannig drjúgan þátt í að klæða landið skógi. Um þetta skrifaði ég í blöð og tímarit og hvatti til, að yfirvöld lögfestu þetta leyfi sem fyrst. Og gróðursetninguna gerði ég í óleyfi yfirvalda, án þess að að því væri fundið, og hélt því síðan áfram í vaxandi mæli í 12 ár, eða til 1960, er ég varð að fara frá Húsavík. Þessi gróðursetning mín með börnunum 1948 er líka merkileg að þvf leyti, að ég er þarna einn af fyrstu skólastjórum, - ef ekki sá allra fyrsti, - sem tek þarna án leyfis einn kennsludag til gróður- setningar með elstu börnum skólans. Ég man ekki nú með vissu, hvenær þetta leyfi fékkst hjá fræðsluyfirvöldum, það eru að- eins tiltölulega fá ár síðan. „En betra er seint en aldrei", eins og einn af ágætum talsháttum okkar segir. Og þetta var vissulega mik- ill sigur, sem ég vona að allir skólar noti sér nú. Okkar ágæti forseti á þar stóran hlut að máli. Upp frá þessu var alltaf töluvert miklu plantað næstu vorin, áreið- anlega ekki færri en 2 til 3 þúsund plöntum. En langmest voru það félagsmenn, börn og kennarar, sem unnu það verk. Almennur áhugi á Húsavík var enn ekki vakn- aður, en það leið nú senn að því. Snemma á árinu 1952 ákvað skógræktarfélagið að stækka girð- inguna töluvert til vesturs og fékk strax leyfi hreppsnefndar tii þess. Girðingarefni höfðum við þá þegar fengið. Dagana 10. til 17. júlí 1952 unnu svo nokkrir skógræktarfélagar að stækkun girðingarinnar og luku þá verkinu og einnig endurbótum á þeirri eldri. Mun þá girðingin hafa verið orðin um 3,5 kílómetrar að lengd. Sigurður stjórnaði verkinu eins og fyrr, og auðvitað unnu allir það í sjálfboðavinnu. Áhugi þeirra var alltaf sá sami. Að þessu loknu hafði nú skóg- ræktarfélagið mun meira og betra friðað land en fyrrtil umráða. Kom þá fljótt fram sú hugmynd meðal stjórnarmanna að skrifa formönn- um allra félaga í bænum, segja þeim ítarlega frá framkvæmdum félagsins og bjóða þeim ákveðinn reit í girðingunni til gróðursetn- ingar og eignar. Töldum við líklegt, að það kynni að geta vakið áhuga einhverra þeirra og e.t.v. fleiri að koma til liðs við okkur þessa örfáu ræktunarmenn. Ritara var falið að skrifa þetta bréf, sem hann vandaði vel og sendi sem fyrst. Það fylgir hér með fjölritað. Þetta var annað bréfið, sem skógræktarfélagið skrifaði Húsvíkingum um þessi mál. Hið fyrra var ritað 1944, þeg- ar hreppsnefndin hafði ieyft okk- ur að girða og friða landið kring- um Botnsvatn. Því bréfi svaraði enginn einasti maður, eins og ég mun hafa drepið á fyrr. Þá var enn engin ástæða til, að dómi Húsvíkinga, að gera neitt í rækt- unar- og friðunarmálum þeirra. Síðara bréfið, skrifað vorið 1952, sem ég drap á áðan, bar hins vegar mikinn og glæsilegan árangur okkur til óvæntrar en óblandinnar gleði. Þrjú félög þáðu að eignast plöntunarreit í girðingunni: kvenfélagið, Rotary- félagið og skátafélagið, og nokkrir ófélagsbundnir lofuðu gróður- setningu. Bar þetta glöggt vitni um það, að Húsvíkingar voru loksins að vakna f þessum mál- um eftir 8 ára svefn. Nokkrum dögum seinna fóru svo nær 30 manns upp eftir og unnu að gróðursetningu f tvo daga, félög f sína reiti og skóia- börn og kennarar í sinn. Veður var hið besta og allir unnu að þessu með mikilli ánægju og gerðu sér öðru hverju ýmislegt til gamans. Svo sem nærri má geta var þessa daga plantað fleiri plöntum en nokkru sinni fyrr, og menn ættu að geta fmyndað sér, hve gleði okkar og hamingja var mikil, þessara fáu áhugamanna skóg- ræktarfélagsins, sem alltaf voru ákveðnir í að gefast aldrei upp. Næstu vorin unnu svo alltaf margir Húsvíkingar að gróður- setningu í girðingunni okkar, eins og við höfðum ávallt stefnt að. Og hér get ég raunar gjarna lokið frásögn minni af þessum fyrstu vakningartilraunum fárra stjórnarmanna Skógræktarfélags Húsavíkur, þó að margt hefði ver- ið hægt að segja miklu nánar. Þeir höfðu að lokum unnið sigur, eins og þeir ætluðu sér ailtaf að gera. Og á árunum 1952 til 1960, þegar ég varð að hverfa frá Húsa- vík, eins og fyrr getur, voru Hús- vfkingar almennt vaknaðir í þess- um aðaláhugamálum okkar: ræktunar-, umgengnis-, lóðafrið- unar- og skrúðgarðsmálum, og margir búnir að koma sér upp fallegum heimiiisgörðum. Og það er alveg einstök ánægja að mega segja að lokum, að eftir þetta hefur skógræktarfélagið í samstarfi með nýjum, einstökum áhugamönnum, sem komu fram nokkru síðar, haldið uppi starfi frumherjanna fáu með svo frá- bærum árangri, að það vekur þjóðarathygli og aðdáun, eins og drepið var á í upphafi þessarar greinar. Húsavfk er nú vissulega orðin, eftir 35 ár, einn alira fegursti um- gengnis- og trjáræktarbær á íslandi. Kannski fögnum við Þórir Friðgeirsson þvf fremur en nokkr- ir aðrir. 104 SKÓGRÆKTARRITIÐ 1998
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164

x

Skógræktarritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.