Skógræktarritið - 15.05.2012, Page 52

Skógræktarritið - 15.05.2012, Page 52
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201250 eru þeir nefndir „tré“ og ekki gerður greinarmunur á stöku tré eða margstofna við túlkun gagna. Beitarálag og nýliðun reyniviðar Beitarálag í Trostansfirði breyttist mikið á síðustu öld eða allt frá því að vera hátt á þriðja hundrað fjár, niður í ekki neitt. Við mat á beitarálagi er eingöngu stuðst við opin- berar tölur samkvæmt ásetningsskýrslum. Ekki er tekið tillit til fjár frá öðrum bæjum sem hugsanlega hefur sótt í fjörðinn. Eftir að Trostansfjörður fór í eyði, seint á sjöunda áratug síðustu aldar, sótti þang- að fé af öðrum bæjum í sumarbeit en henni lauk um tíma eftir 1984 þegar skera þurfti fé á svæðinu vegna riðu.16 Fé var aftur, smám saman, tekið á svæðið eft- ir tiltekin fjárlausan tíma sem var 3 ár. Nú á síð- ari árum, eða uppúr aldamótunum 2000, hefur svo beit verið að aukast aftur eftir að fé fór að fjölga á Barðaströnd og í nágrannasveitum. Aldur trjánna segir eðlilega líka til um „fæðingar- ár“ þeirra. Athygli vekur að nánast engin endurnýj- un reyniviðar á sér stað á tímabilinu 1946 til 1983. Aðeins eitt tré er „fætt“ á tímabilinu, árið 1960. Mesta endurnýjunin virðist vera um 1910 og einnig laust fyrir 1930 og svo á tíu ára tímabili milli áranna 1986 og 1996. Ekki var skoðað sérstaklega hvernig reyniviðurinn á rannsóknarsvæðinu endurnýjaði sig eða hvern- ig nýliðun væri háttað. Við skráningu mælinga var einnig skráð hvort um rótarskot væri að ræða. Þeg- ar þær athugasemdir eru skoðaðar kemur fram að í hópi trjánna sem „fæddust“ eftir 1983 voru 13 komin upp af rótarskotum og því aðeins 4 sem gætu hugsanlega verið fræplöntur. Rótarskot (teinungar) voru taldir hjá nokkrum trjám og töldust 33 þar sem þeir voru flestir. Elsta og yngsta tréð í Norðdal var af sömu rót. (3. mynd). Árhringjabreiddir og hitafar Skoðuð var fylgni milli sumarhita í Stykkishólmi og árhringjabreiddar reyniviðar í Trostansfirði (fyrir báða dalina saman). Fylgnin reyndist vera í meðal- lagi (meðal fylgni) með fylgnistuðulinn (r) = 0,42. Á mynd 4 hefur sumarhitinn og meðalárhringjabreidd- in verið sett saman í eitt graf og dregin fylgnilína gegnum hvort grafið fyrir sig til að átta sig betur á ferlunum. Þar sést hvernig ferlarnir eru samsíða með sömu stefnu fyrir 1930 og svo aftur upp úr 1990. (4. mynd). Þegar aldurshópaskipting gagnasafnsins hefur ver- ið sett á sama upphafspunkt er hægt að skoða og bera saman vöxt hvers aldurshóps (5. mynd). Áber- andi er að tré í yngsta hópnum (yngri en 30 ára) eru að vaxa hraðast. Vaxtarhraði trjánna í yngsta hópnum er 6 % meiri en fyrstu árin í 60 – 85 ára hópnum en aftur á móti 3. mynd. Fjórir stofnar reyniviðar í Norðdal, með mismunandi „fæðingarár“, vaxnir upp af sömu rót. Gefur vísbendingu um hvernig reyniviðurinn viðheldur sér með rótarskotum. Stofn 1: 117 ára. Stofn 2: 63. ára. Stofn 3: 18 ára. Stofn 4: 15 ára.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.