Skógræktarritið - 15.05.2012, Page 59

Skógræktarritið - 15.05.2012, Page 59
57SKÓGRÆKTARRITIÐ 2012 júlímánaðar í Hjarðarlandi 11,88 gráður og sumar- mánaðanna þriggja 10,94 stig. Á sama tíma mæld- ist júlíhitinn 11,59 stig í Reykjavík og 11,39 á Ak- ureyri. Meiru munar í meðaltali hámarkshita, sem er 16,5 í júlí á Hjarðarlandi á móti 14,75 í Reykja- vík og 15,46 fyrir norðan. Hlýindunum fylgir úr- koma. Ársmeðaltalið er 1346 mm, aðeins blautara en í Reykjavík og rúmlega tvöfalt á við Akureyri. Við þetta bætist að fjóra vetrarmánuði, desember til mars, er hiti að jafnaði undir frostmarki. Í íslenskum samanburði gerast þessar tölur ekki öllu betri. Á Drumboddsstöðum er tvíbýli og er skógræktar- landið á norður- og austurhluta hinnar fornu jarð- ar, u.þ.b. 330 ha. og rennur Hvítá á austurmörkum landsins. Landgerð er fjölbreytt, þurrt mólendi með grunnum jarðvegi, víðáttumiklir stórþýfðir grasmó- ar á framræstu landi, melar, kjarr og einstaka vall- lendisbrekka. Tún eru fremur lítil. Mikill jökul- sorfinn hraunskjöldur þekur um helming landsins, þakinn mosa og þyrrkingslegum gróðri þar sem þurrast er, en kjarri vaxinn annarsstaðar. Tvö gil- drög eða smádalir kljúfa klapparholt þetta og nefn- ast gjóstur, enda gustar eftir þeim í norðaustanátt, sem hér er þrálátust vindátta. Þar sem hallar vestur af holtinu er hálfdeigja allstór og heitir á Bringum. Hinn hluti landsins sem liggur nær Hvítá er lægri og sléttlendari. Þar hefur áin flæmst um í árdaga en síð- an fært sig austar og skilið eftir allmikið undirlendi, víða blautt. Þar eiga álftahjón óðul í seftjörnum en hinn þurrari hluti mýrlendisins var ræstur fram fyrir tæplega hálfri öld með túnrækt í huga. Lágur ás skil- ur þennan gamla fljótsbotn frá jökulelfinni þar sem hún rennur rólyndislega í grunnu og breiðu gljúfri. Þar sigla nú ferðamenn og taka land í sandfjöru rétt sunnan skógræktarlandsins, en fljótasigling hef- ur um árabil verið starfrækt frá nágrannabænum Drumboddsstöðum I. Þegar landið var tekið til skógræktar hafði það verið að mestu sauðlaust um árabil og náttúruleg- ur birkigróður, þéttastur fjærst bæ og fjárhúsum, að taka við sér. Gróður bar þó enn vott um aldagamla þrautpíningu og sumstaðar vottaði fyrir uppblæstri. Hinir nýju eigendur létu gera skógræktaráætlun þar sem landið var kortlagt og því skipt í reiti eftir gróðurfari og mælt fyrir um hverju skyldi plantað (aðallega ösp/greni annarsvegar og furu/lerki hins- vegar). Var þetta unnið af Sigvalda Ásgeirssyni skóg- fræðingi sumarið 1986. Næðingur og nöpur frost Þótt Drumboddsstaðir væru vel í sveit settir til skóg- ræktar leyndust ýmis ljón í veginum þegar til átti að taka. Einna verst var skjólleysið. Í uppsveitum Árnessýslu eru norðaustan- og austanáttir þrálátar, oft þurrar og kaldar. Flatlendi á Drumboddsstöð- um, grasmóar og framræstar mýrar, liggur opið fyrir Gróðursett á Bringum vorið 1992. Hér hallar landinu örlítið og verður það margri smáplöntunni til lífs.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.