Skógræktarritið - 15.05.2012, Page 84

Skógræktarritið - 15.05.2012, Page 84
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201282 góðan rekstur skógarins sem hefðu eitthvað að segja um framtíð svæðisins fremur en t.d kenningar Hayeks og Miltons Friedman með tilliti til búsetu og búhátta. Franskir voru sammála um að vandamál sambýlis búfjárræktar og skógar væri beitarstjórnun og aft- ur beitarstjórnun. Öldum saman gættu smalar beit- ardýra og gáðu þá að ofbeit einnig. Fátækir bænd- ur hneigðust til geit-búskapar sem var erfiðara að stjórna. Napóleons-lögin gáfu færi á að banna beit í skógum í vissum tilfellum. Þessum lögum er enn beitt og framfylgt með smölun. Menn áttuðu sig á því að algert bann til langs tíma leiddi til aukinn- ar hættu á tjóni af völdum skógarelda og gat leitt til hnignunar lerkiskóga á kostnað furu og grenis. Framtíðarsýnin er samningur um beit í skógum milli eiganda skógarins og eigenda húsdýra líkt og kom- ið er á í Val d´Isére þar sem sveitarfélagið leigir eða lánar haga sína til bænda (jafnvel úr 5 klst. aksturs- fjarlægð) og sparar um leið slátt í skíðabrekkum og snjóflóðahlíðum. Skógurinn þarna var hreint unaðslegur og vel gert 100 ára gamall „ungskógur“ evrópulerkis í Val d´Isére, notaður sem fræteigur í héraðinu og verður varinn fyrir ágangi rauðgrenis. Mynd: SKÞ. við göngufólk með gönguslóðum. Við áðum við sembrafuru í 2.150 m hæð. Tréð var um 20 m hátt og þvermál stofns í brjósthæð var 70 cm. Á leiðinni upp söfnuðum við smávegis af sembrafræi, en urð- um í hvert sinn sem okkur langaði í köngla að ráð- færa okkur við frú Chantale Faure enda réð hún öllu þarna um fræ og frætínslu. Bonneval- Col d´Iseran - Val d´Isére – Tignes – Mont Blanc Síðasti áfangi Frakklandsvalar var ferð norður um fjallaskarð til hins fornfræga skíðastaðar Val d-´Isére. Ekið var að þorpinu Bonneval (Góðdalur – eða bara Unaðsdalur) sem er að sögn annað af tveim- ur þorpum í Frakklandi sem stendur svona hátt yfir sjávarmáli, í 1.800 m hæð (fyrir utan nokkur seinni- tíma skíðaþorp). Þetta er dæmigert sveitaþorp, sem greinilega byggir á beitarbúskap að mestu, enda skógar horfnir utan trjágróðurs í þorpinu sjálfu, að- allega selja (Salix caprea), blæösp (Populus tremula) og birki. Lauftegundir eins og hlynur (Acer pseu- doplatanus) og askur (Fraxinus excelsior) ná ekki svona hátt upp. Askur vex ekki hærra en í 1.400 m hæð en hlynur í allt að 1.800 m hæð. Áfram ekið upp í fjallaskarð í norðri Col d´Iseran í 2.760 m hæð. Þaðan lá leiðin niður í átt að frægasta skíðasvæði Frakklands, Val d´Isére, allt frá fjórða áratug síðustu aldar og fórum við strax að sjá gríð- arleg skíðamannvirki á fjallatoppum í öllum áttum auk hefðbundinna snjóflóðavarna, upptakamann- virkja mest. Í skarðinu hittum við fyrir skógarvörð svæðisins, Robert Talbot, sem leiðsagði okkur síðasta áfang- ann. Robert sagði okkur að á sínu svæði giltu dálít- ið önnur sjónarmið en annars staðar, hér snérist allt um að græða á ferðamönnum og önnur starfsemi svo sem búskapur eða skógarhögg væru í besta falli „vandamál“ og öll hans vinna snérist um snjóflóða- varnir, snjófangara og að rækta upp skóg í fram- kvæmdaraski af ýmsu tagi. Einnig tekur skógræktin mið af tískustraumum skíðamanna sem gjarna vilja skíða í brekkum sem umkringdar eru rauðgreni. Yfir bænum náði sembrafuran sem stöku tré al- veg upp í 2.400 m hæð en samfelldur skógur í 2.200 m. Lerki var þarna alls staðar innan um og samfellt neðar í hlíðum og niður á dalbotninn í rúmum 1.800 m. Lítið sem ekkert fræ var á lerkinu og sama var að segja um sembrafuruna og það sem fyrr af völdum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.