Morgunblaðið - 20.03.1997, Síða 56
MORGUNBLAÐIÐ
56 FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1997
Voryprurnar frá
eru komnar.
Verðdæmi:
Jakkar frá kr. 5.900.
Buxur frá kr. 1.690.
Pils frá kr. 2.900.
Blússur frá kr. 2.800.
Nýbýlavegi 12, sími 554 4433.
KYNNING
sokkabuxurM,
OROBLu'sok^^^^
fimmtudaginn 20. mar
kl. 14:00 -18.00
APÓTEK GARÐABÆJAR
Hrísmóum 2, Garðabæ, s. 565 1321.
: :■
v/Nesveg, Seltjarnarnesi
Sími 551 1680.
I DAG
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Netfang: elly@mbl.is
Með morgun
kaffinu
HANN hefur verið svo
duglegur síðan hann datt
á höfuðið að ég hef ekki
getað hugsað mér að
hringja á iækni.
VIÐ getum orðað þetta
þannig: Ekki vildi ég vera
í þínum sporum.
Góð reynsla af
Hörðuvöllum
VELVAKANDA barst
eftirfarandi bréf:
„Mig langar að leggja
örlítið orð í belg í sam-
bandi við málið á leikskól-
anum á Hörðuvöllum. Ég
ætla ekki að ræða það
sem gerðist, ekki að af-
saka eða ákæra, til þess
veit ég of lítið um málið.
Ég ætla aðeins að segja
frá minni reynslu af leik-
skólanum. Ég hef átt
þarna 2 bamaböm, annað
þeirra að mestu alið upp
hjá okkur hjónum, var á
Hörðuvöllum í 4 ár fyrir
12-16 árum, og hitt er
að hverfa þaðan í vor eft-
ir 4 ára dvöl þar. Við hjón-
in og foreldrarnir svo og
bæði börnin hafa verið
mjög ánægð með dvölina
á Hörðuvöllum. Börnin
sæl og ánægð, róleg og í
góðu jafnvægi og lært
mikið og þroskast vel. Ég
á líka 8 ára gamla frænku
sem þama var í nokkur
ár og bæði hún og foreldr-
arnir vom mjög ánægð,
bar aldrei skugga á. Og
aldrei, hvorki fyrr né síð-
ar, hef ég heyrt óánægju-
raddir með leikskólann.
Mig langar til að koma
þessu á framfæri vegna
þess að mér fínnst fólk svo
miklu duglegra að tíunda
það sem miður fer heldur
en hitt sem vel er gert.
Með bestu kveðju."
Asthildur Olafsdóttir,
Tjarnarbraut 13, Hf.
Skattlagning
á börnura
ÉG get ekki orða bundist
varðandi fjármagnstekju-
skattinn margfræga. Son-
ur minn átta ára gamall
var að láta eyðileggja
sparisjóðsbókina sína um
daginn. Þetta eru pening-
ar sem amma og afi hafa
verið að lauma í baukinn
og afmælisgjafir. Af þess-
um aurum drengsins var
tekinn flármagnstekju-
skattur. Þegar skattleggja
átti blaðburðarbörn var
sagt: Svona gera menn
ekki. Ég vil bara endur-
taka þessi orð. Ég hef
aldrei talið eftir mér að
borga skatta, en þegar
ríkissjóður er kominn með
skattakrumluna ofan í
sparibauka barnanna þá
er mér nóg boðið.
Andrea Arna
Gunnarsdóttir.
Tapað/fundið
Seðlaveski
tapaðist
SVART seðlaveski tapað-
ist í eða við Sundhöllina
við Barónsstíg. Uppl. hjá
Gulla í síma 563-2490 til
kl. 16 eða í síma
561-2187.
Sjómenn koma að landi
Víkveiji skrifar...
Morgunblaðið birtir iðulega
fréttir af dómsmálum. Blaða-
menn hafa ágæta þjálfun í að lesa
úr flóknum dómum, sem stundum
eru skrifaðir á tungumáli, sem erf-
itt er að átta sig á.
Nýlega féll dómur í máli, sem
snerist um umfangsmikinn fjár-
drátt og skrifaði einn blaðamanna
blaðsins frétt. Það gekk ágætlega,
en að vísu vafðist ein setning í
dóminum verulega fyrir honum.
Það kom svo sem ekki að sök, þar
sem hún skipti ekki sköpum um
niðurstöðuna, en svona var þessi
ágæta setning: „Refsing ákærðu
verður ákveðin með hliðsjón af
því, að brot hennar er sérlega stór-
fellt, en um er að ræða framhald-
andi röð samkynja fjárdráttar-
athafna, framið kerfisbundið,
m.a. með ýmsum rangfærslum í
bókhaldi og stóð yfir í fjögur og
hálft ár.“ Lesendur geta svo
spreytt sig á að skilja hvað átt er
við með „framhaldandi röð sam-
kynja fjárdráttarathafna“.
xxx
Víkverji viðraði fyrir skömmu
áhyggjur sínar af túlkun í
dómssal, í framhaldi af skýrslutöku
af þýskum skipstjóra Víkartinds í
sjóprófum. Gerði Víkveiji athuga-
semdir við, að skort hefði á íslensk-
an orðaforða túlksins. Jón Finn-
björnsson, dómarafulltrúi sem situr
í forsæti dómsins, hafði samband
við Víkvetja og tjáði honum að
þýðingin hefði verið mjög skilmerki-
leg, þrátt fyrir að túlkinn hefði ein-
staka sinnum skort tækniorð og ef
til vill rekið örlítið í vörðurnar á
íslenskunni, sem eðlilegt væri þar
sem túlkurinn væri ekki íslenskur.
Sjálfur væri hann mjög sáttur við
störf hans, auk þess sem þinghald-
ið hefði verið hljóðritað og ummæli
skipstjórans því öll til hljóðrituð, ef
eitthvað færi milli mála. Víkveiji
fagnar athugasemd dómarans.
Skrif Víkveija voru ekki ætluð
til að varpa rýrð á einstakling, held-
ur aðeins að velta fyrir sér nauðsyn
nákvæmrar og góðrar túlkunar. Því
er ánægjulegt að fá staðfestingu
dómarans á, að vel sé að slíkum
hlutum gætt.
xxx
LANDSBYGGÐARBLÖÐ hafa
átt á brattann að sækja und-
anfarin misseri, m.a. vegna aukinn-
ar skattheimtu. Enn eru þó gefin
út nokkur góð landsmálablöð og
sum framúrskarandi.
Að mati Víkveija er blaðið Frétt-
ir í Vestmannaeyjum besta lands-
málablaðið sem gefið er út um þess-
ar mundir. Það er efnismikið blað
sem er með snörp tök á fréttum
og býður oft upp á góð viðtöl.
Bæjarins besta á ísafirði kemur
næst á eftir Fréttum. Víkveiji sakn-
ar blaða sem lagt hafa upp laup-
ana, s.s. Skagablaðsins á Akranesi.