Morgunblaðið - 08.12.2000, Blaðsíða 5
Heimskona
og hvunndagshetja
Ung kvaddi Ragna Bachmann æskuslóðir sínar í braggahverfinu
Kamp Knox með erfiða reynslu að baki og hélt út í heim, þar sem
kún kynntist spennu og hættum hins ljúfa lífs.
í Svasílandi og á Sri Lanka, á Jótlandi og í Jóhannesarborg, í Belgíu
og Botsvana, í Reykjavík og víðar rataði hún í ótrúlegar raunir en
fann jafnffamt dýpstu gleði.
Saga skemmtilegrar og kjarkmikillar konu sem hefur notið
glæsileika ævintýranna, látið ginnast af blekkingum þeirra og
sjónhverfingum, leyst hinar bitru þrautir og hlotið að launum
dýrmæta reynslu og þroska.
Oddný Sen hefur skrifað reisubók Rögnu Bachmann á afar
lifandi og nærfærinn hátt.
I Þar sem ástin
greip í taumana
if
Kjuregej Alexandra segir hér ffá óvenjulegu lífshlaupi sínu,
ffá örlagaþrungnum uppvexti sínum í Jakútíu, einu fjar-
lægasta landi gömlu Sovétríkjanna, þar sem líf á samyrkju-
búum, oft við óblíðar aðstæður, og skólaganga fjarri heima-
högum var hlutskipti hennar.
Effir það lá leiðin á leiklistarháskóla í Moskvu, þar sem ástin
a greip í taumana og leiddi hana alla leið hingað til Islands þar
sem ævintýri og átök biðu hennar.
Framandi menningararfur, hispursleysi og kjarkur hafa
auðkennt allt það sem þessi fjölhæfa listakona hefur tekið sér
fyrir hendur og saga hennar er saga allra þeirra sem láta hjartað
ráða för - og gefast aldrei upp.
Súsönnu Svavarsdóttur, höfundi bókarinnar, tekst að láta rödd
Kjuregej hljóma í ffásögninni á einkar lifandi hátt.