Skírnir - 01.01.1879, Blaðsíða 12
12
INNGANGUR OG ALMENNARI TÍÐINDI.
«freisti nokkrir þess aptur, veröa þeir höggnir niSur sem
hráviSi'i.
Frá þrem stöSum er frá drepsóttum aS segja. í suburríkjum
NorSurameríku — sjerílagi í Louisiana og Texas — gekk í
sumar pestin gula og varS afar mannskæS. þaS er sagt, aS í
henni hafi látizt á llta þúsund manna. — Frá Brasilíu kom sú
fregn í fyrra hluta JanúarmánabaT (þ. á.), aS bólusótt hefSi
geysaS sem ógurlegast í norSurhjeruSum ríkisins í nóvember og
desember, og hefSi í einu fylkinu drepiS 9000 manna. — í
nóvember tók aS brydda á nýstárlegri pest í Astrakan, landi
Bússa milli Kákasus og kaspiska hafsins, einskonar rotnunarsýki,
sem byrjaSi meS eitlabólgu undir holhendinni, og færSist svo
víSar meS grepti og rotnnn. í fyrstunni var drepsóttin ekki
mannskæS, en þar kom skjótt, aS fram úr öllu hófi keyrSi, og
hvers sem í var leitaS af læknanna hálfu, þá kom þaS aS engu
haldi. í bæ einum litlum, sem Vetljanka heitir (21 mílu í
útnorSur frá Astrakan , borginni) eyddi hún hjerumbil helmingi
fólksins, og af þeim sem sýktust dóu 85 — eptir öSrum sögum
95 — af hundraSi. I þeirri tölu voru sjö læknar ~ þeir allir
sem höfSu viljaS hjálpa fólkinu, prestur þorpsins og nálega allir,
sem komu enum dauSu í jörSina. Sumir læknar kalla þessa
drepsótt «ena austurlenzkui) eSa «indversku», og ætla aS hún
sje sú en sama, sem fyrrum var kölluS «svarti dauSi». þegar
þetta var skrifaS (í lok janúarmán) heyrSist reyndar, aS pestin
væri í rjenun, en svo mikill ótti stóS af henni, aS öll ríki höfSu
sóttvarnaráS meS höndum — sjerílagi grenndarríki Rússlands,
þýzkaland og Austurriki. Rússar hafa sett hervörS um svæSiS
al)t, þar sem pestin geysar, en taki bún sig upp aptur, þegar
hitnar í veSrinu, þá er ekki aS vita, hvort þær varnir duga.
Samskonar verSi hafa allir fyrirhugaS, þeir sem lönd eiga aS
landamerkjum Rússa í Evrópu, ef pestin flyzt hingaS, eSa
vestur yfir Úral (fjallgarSinn). Vjer munum í Rússlandsþætti
geta betur sagt frá, til hvers dregur og hvernig á horfist meS
vorinu.
Skírnir minntist í fyrra ó uppgötvanir Edisons í NorSur-
ameríku («hljóSritann» og fl.), en nú hefir hann bætt þeirri viS,