Skírnir - 01.01.1879, Blaðsíða 40
40
FRAKKLAND.
aS þeir sáu sjer fullan sigur vísan. Allt ura þaS sendu þeír
kjörmönnunum nýtt ávarp rjett fyrir jólin, og minntu þá á svo
mart sem vel befSi tekizt (t. d. alþjóSasýninguna og frammistöSu
Frakklands á friSarfundinum), eSa væri í bezta horf vikiS (t. d.
þau hin stórkostlegu fyrirtæki til landvarna), síSan þjóSveldiS
befSi komizt á fastari stöSvar. þrátt fyrir þetta hefSu fjand-
menn þess ekki viljaS leggja af sjer vopnin, og þaS þó þeir
hefSu í öldungaráSinu kannazt viS, aS þeir mundu engu til
lei&ar geta komiS. Kjörmennirnir ættu um tvennt aS velja, aS
fylgja þeim, sem vildu halda uppi fána þjóSveldisins og ríkis-
laganna meS einurS og hreinskilni, eSa hinum, sem heffra allt á
huidu og þyr&u ekki aS setja upp merki sín, því þeir vissu vel,
aS þeir um leiS mundu reisa ófriS og byltingar í landinu. —
þrem dögum siSar (á aSfangadag jóla) var þaS, aS Gambetta
talaSi langt erindi í veizlunni, sem hjer aS ofan er minnst á.
Hann hafSi í hinni ræbunni tekiS þvert fyrir, aS hann vildi ná
forsetadæmi ríkisins, og nú kallaSi hann þaS róg viS sig, er
slíku væri fleygt. Hann kvazt láta sjer nægja aS vera þjónn
lýSvaldsins, og þaS skyldi sannast enn betur, er stundir liSu.
Hann sagSist vona aS einvaldsliSum mundi bregSa heldur í brún
5. janúar (kosningardaginn), því þá mundi ný öld renna upp
fyrir þjóSveldinu, og Frakkland mundi þá sjá fyrir endann á
þrautum sínum og fara aS njóta hamingju sinnar í ró og friSi.
Hann sagSi, at Frakkar brygSu þar á óhyggilegt ráS, ef þeir færu
aS koma þjóSvaldsstjórn á framfæri fyrir utan landamæri Frakk-
lands. «Nei frakkneska þjóSveldiS er vort þjóSveldi, því eigum
vjer aS þjóna og þess lög og landstjórn eigum vjer aS bæta en
engra annara». J>ess má geta, aS hvorki Gambetta nje aSrir
bjuggust viS, aS sigurinn viS kosningarnar mundi sæta þeira
yfirburSum, sem síSar reyndist. Hann komst svo aS orSi, aS
sjer hefSi lengi þótt víst, aS þjóSvaldsmenn mundu ná 20 at-
kvæSum yfir hina fram í öldungaráSinu, en hann þyrSi nú aS
ábyrgjast, aS atkvæSamunurinn mundi nema 25. En viS kosning-
arnar dró svo til munar, aS af 81 voru 66 kosnir af þjóSvalds-
manna flokki, og fengu þeir svo 57 atkvæSi fleiri hinir í öld-
ungadeildinni. Keisaravinir höfSu orSiS verst út undan viS