Skírnir - 01.01.1879, Blaðsíða 17
ENGLAND.
17
(“Khansríki), sem áSur höf5u veriö lýSskyld Kahúls-e5a Afgana-
lands-höfðingja, en Rússar töldu nú undan honum gengin.
Höfbinginn («Emírinn») sannabi a& því leyti mál Englendinga,
hann taldi til rjettar á einu þeirra, er Balk heitir, og lag&i
t>a8 undir sig 1872. Eptir þetta tóku Rússar a5 dragast, undan
audsvörum, er Englendingar vöktu þa& mál vi5 þá, en Kauffmann
hershöfðingi, a&alforingi Rússa þar eystra, fjekk jiau skeyti frá
Pjetursborg, a5 stjórn keisarans liti svo á, sem löndin væru
Afganistan óhá5 með öllu; 1>. e. a5 skilja: til þeirra mætti taka,
Þegar færi gæfi. Ári5 á eptir kljábu Rússar út deilur sínar í
Kíva og gerðu enda á sjálfsforræði landsbúa, og vi5 það datt
iuáli5 nibur, og sí5an hafa Englendingar fagað, en haft þó góðar
gætur á tiltektum Rússa.
Yjer víkjum nú aptur máli voru að Afganistan og höfðingja
l>ess, eður viðskiptum hans við Englendinga. Hann heitir Shír
Alí og er sonur Dost Múhameðs, sem J»ótti dugandi höfðingi, en
gerði það á hluta Englendinga, að þeir veittu honum atfarir
(1839) og sviptu hann völdum (1840). J>ó Shír Alí væri yngri
enn bræður hans (tveir), leiddi Dost Múhamed hann til arfs
að ríkinu, og reis af því uppreisn og allhörð styrjöld innanrík-
is, en Shír Alí fjekk hjer fullan sigur til lykta. í l»eim
ófriði (sjá Skírni 1875 bls. 101 —102) var fað Jakúb sonur
hans, hinn eldri, sem dugði honum bezt, j>ví hann er braustur
maður og herkænn. Allt um j>að unni Shír Alí meira yngra
syni sínum, Abdúlla að nafni, og því gerði hann að dæmi
föður síns og nefndi hann til ríkiserfðanna, en var hinum mjög
óvinveittur og setti hann seinast í varðhald og vildi með því
gera fyrir ófrið innanríkis. Abdúlla var að sögn heldur lítill
fyrir sjer, en hafði menntazt á Indlandi, og jþví hjelt bróðir hans,
að það væru Englendingar, sem hefðu mælt fram með honum
við föður sinn. En að þeirra sögn víkur þessu eigi svo við,
og vildu þeir hel dur koma svo sáttum á með þeim feðgum, að
Jakúb hjeldi rjetti sínum, og hafði hann þó leitað liðs hjá Rússum
og beðið þá hlutast til málanna. Annars hafa Englendingar sýnt
sig Shír Ali mjög vinveitta frá byrjun ríkis bans, og þeir efldu
hann þá bæði að fje og vopnum, er honum lá mest á. Sama
Skírnir 1879. 2