Skírnir - 01.01.1879, Blaðsíða 46
46
FRAKKLAND.
út meSal almennings, sem gæti vaki8 sundrung og komið sem
íiestu á tvist og bast. þa8 hefði t. d. borið Jiað út um bann
sjálfan, a8 hann væri vakinn og sofinn í gróðabrögbum í sam-
kunduhöll kaupmannanna. Hjer bar mest á einum manni úr
hinum harðsnúna flokki vinstri manna, sem Clémenceau heitir,
og á seinni timum hefur gengið harðast fram yzt í vinstra
fylkingararmi þingsins. Menn segja, a5 mælska hans hrífi meir
á, enn orðfimi Gambettu, sökum þess, a8 hann talar me8 stillingu
og kulda. BáSherrann heiddist, a8 spurninni væri svo a8 sjer
snúiS, sem venja væri til, er menn vildu fá þingiega skilagreizlu,
og kvazt vilja, a8 þetta væri þegar gert á þeim fundi. þa8 var
laugardaginn 1. marzmánaðar, en Clémenceau vildi láta þa8 bí8a
mánudags, a'Ó menn gætu betur búib sig undir. Á þetta fjellst
meiri hluti þingmanna, en hjer sigruðu hinir harSsnúnu fyrir
fylgi einvaldsflokkanua. Á mánudaginn fór ekki betur, því þó
Marcére færði góðan sann fram fyrir því, a8 það væri erfiðast
allra mála «a8 hreinsa löggæzlustjórnina* (setja viðvaninga og
óreynda menn í stað hinna eldri og reyndu, og svo frv.), þá tókst
honum ekki vel a8 gera grein fyrir, hvers vegna hætt hef8i
veri8 við rannsóknina, sem hef8i verið hafin í gegn höfuðstjórn
löggæzlunnar. Meiri hluti atkvæða fyigdi enn uppástungu Clémen-
ceaus, að þingiB skyldi lýsa þa8 ónógt til skýringar, sem ráð-
herrann hefði fram flutt. Sama dag sagði Marcére af sjer, en í
hans sta8 kom Lepére (ráðh. verzlunarmálanna). Við verzlunar
og akuryrkjumálum hefur tekið sá þingmaður frá París, sem
Tirard heitir. þó allt kæmist svo í samt lag í stjórninni og
menn byggjust við, að allt yr8i kyrrara á þinginu, leið ekki á
löngu fyr enn það mál kom frá nefnd, er menn vissu, að mundi
verða að miklu deildarefni. þeir enir ákafa meiri vinstra megin
höfðu borið það upp, a8 málsókn skyldi hafin af þingsins hálfu
í gegn þem Broglie og Fourtou (ráSherrunum frá 16. mai; sjá
Skírni 1878, blss. 64 — 68) fyrir öll þau ólög, er þeir hefðu gert
meðan þeir vorn við völdin, og hefðn beint miðab til a8 ríða
þjóðveldinn a8 fullu, og endurreisa einveldisstjórn. Af 28, sem
voru í nefndinni, er sett var til að rannsaka málið og búa til