Skírnir - 01.01.1879, Blaðsíða 24
24
ENGLANl).
Kaffakyni búa og margir — menn segja 300,000 — í nýlendura
Breta, einkum í Natal,*) og raá vera, að konungur treysti t>ví,
aS J?eir rísi upp móti Englendingum, ef leikurinn færist inn
yfir þeirra landamæri. Englendingar eru ekki liSmargir þar
suður frá, því heraflinn er ekki meir enn 13,000, og er helming-
urinn aS eins af Evrópu kyui. þaS er sagt, ab Portúgalsmenn
muni veitast til meS þeim, því þeir eiga líka nýlendu upp viS
KaffalandiS. SíSustu frjettir frá SuSur-Afríku stigSu, aS hers-
höfSingi Englendinga, Chelmsford lávarSur, hefSi veriS kominn upp
aS landamerkjum Zúlú-Kaffa, og nokkrar sveitir af her hans
væru komnar yfir þau, en til óvinahersins hefSi ekki sjezt neitt
aS svo stöddu. Sigrist Bretar á Köffum, sem vart er aS efa, þá
munu þeir ekki vilja hafa minnafyrir ómak sitt, enn fulla trygg-
ingu fyrir betri búsifjum af þeirra hálfu bæSi viS sig og aSra.
þó Englendingar sje fastheldnir á gömlum lagavenjum, roka
þeir fast og kappsamlega eptir lagabótum, þegar þeir finna, aS
en eldri lög úreldast, eSa bráSa nauSsyn ber til breytinga
og nýmæla. þinginu var lokiS í miSjum ágústmánuSi, og þó
útlendu málin hlytu aS taka svo mikinn tíma sem til stóS, voru
mörg merkileg frumvörp fram borin og rædd — en fæst til
lykta eSa framgöngu. Af þeim lögum, sem samþykkt voru í
báSum málstofum skal nefna: lög um vinnu í smiSjum og iSnaS-
arskálum. Hjer voru 47 eldri lagaboS dregin saman í eina
lagaskrá í 107 greinum, en aukin og endurbætt. Lögin mæltust
vel fyrir á þinginu, og fengu beztu undirtektir af þeim tveimur
mönnum (Burt og Macdonaid), sem sjerílagi teljast vera full-
trúar verkmannastjettarinnar. þeim eiga aS fylgja — líkast á
næsta þingi — nýmæli um skyldu verkmeistara, aS gefa þeim
verkmönnum bótagjald, sem fá örkuml eSa slasast í vinnunni.
Enn fremur: rjettarbætur giptra kvenna. þar er konum leyft
aS flytja sig burt frá bændum sínum, ef óþyrmilega er meS þær
fariS og þær hafa ekkert til unniS. Einnig skulu þeir skyldir
til aS leggja á hverri viku bæSi konu og börnum eptir atvinnu og
*) Mikill fjöldi þeirra manna hafa komið þangað landflótta, og forðað
sjer svo frá ofboðunum heima.