Skírnir - 01.01.1911, Page 25
Sægróðnr Islands.
öllum íslendingum er kunnugt, að mikill gróður er í
hafinu við strendur landsins. Eg þykist vita að flestir
muni kannast við gróður þenna, þó ekki sé nema þangið
og þarann. Af því að sævargróðurinn hér við land er
mikill og blómlegur, má ganga að því vísu að sæjurtir eigi
við góð gjör að búa við strendur vorar. Mun eg því fyrst
fara nokkrum orðum um hafið umhverfls Island og athuga
hvernig kjörin eru, sem það býður börnum sinum.
H a f i ð. Venjulega er komist svo að orði, að Island
sé í Atlantshafi norðan til og að Norðurishafið laugi nyrstu
tangana. Er þá heimskautsbaugurinn nyrðri látinn að-
greina höfin. Heimskautsbaugurinn er baugur, sem menn
hugsa sér dreginn um jörðina i tiltekinni fjarlægð frá
skauti hennar. Nærri má geta að ekki muni vera mikill
munur á hafinu norðan og sunnan við bauginn. Heim-
skautsbaugurinn er því ekki eðlilegt takmark milli haf-
anna. Hin réttu takmörk milli hafanna rná greina á jafn-
hitalinum og jafnseltulínum. Þannig má skifta hafinu í
kaldan og heitan sjó, og er það miklu heppilegra, einkum
er ræða skal um kjör sæveranna. Læt eg mér nægja
þessar athugasemdir og sný mér þá að hafinu umhverfis
ísland.
Það er alkunnugt að Golfstraumurinn (Flóastraumur-
inn) flytur heitan sjó að ströndum landsins, og Island
mundi að líkindum vera óbyggilegt ef ekki nyti hans við.
Golfstraumurinn kemur sunnan að landinu og heldur svo
norður á leið meðfram vesturströndinni. Ofurlítil grein af
Golfstraumnum rennur svo austur með norðurströnd lands-