Skírnir - 01.01.1911, Blaðsíða 76
76
Ritfregnir.
Villur hefi eg engar orðiS var við, sem varla er við að búast,
þar sem hlut á að máli jafnfær maður og háttv. höf., og er það
stór kostur að geta reitt sig á að alt sé rétt, sem í bókinni stend-
ur. Kost álít eg það líka, að höf. fullyrðir ekki um neitt það í
hljómfræðinni sem helztu tónfræðingar heimsins ekki eru alveg
sammála um.
Hljómfræðin er ein af þeim fræðigreinum, sem tæpast verður
lærð án tilsagnar, svo að haldi komi. — Til þess að geta raddsett
lag svo vel fari, er ekki nóg að vita helztu reglur fyrir raddsetn-
ingu; þeir sem við það fást þurfa helzt að hafa næmt og »vel
skólað« eyra til þess að geta heyrt hvað betur má fara og umfram
alt verða þeir, sem þessa fræðigrein vilja nema, að iðka af kappi
verklegar æfingar undir handarjaðri góðs kennara, því á því læra
menn meira en nokkur bóklestur getur veitt þeim.
Höfundurinn bendir i formála bókarinnar á slíkar verkefnis-
bækur, og enda þótt mér sé kunnugt um, að verkefnabók sú, er
Foss hefir gefið út, sé í alla staði góð, þá hefði eg þó heldur kosið,
að höf. sjálfur hefði samið slíka bók í samræmi við þessa hljóm-
fræði, er nemendur hefðu átt kost á að eignast, og vona eg
að hann láti verða af því innan skams.
Eins og við er að búast, er fjöldi nýyrða í bókinni og líka
mér sum þeirra vel, en flest ágætlega. Hefði farið vel á ef höf.
hefði sett útlendu nöfnin innan sviga aftan við fyrirsagnir greinanna.
Að öllu samanlögðu verð eg að álíta, að höf., sem flestum er
góðkunnur, ekki að eins sem tónskáld, heldur og fyrir hinn mikla
áhuga sem hann hefir sýnt á því að efla og glæða hina fögru list,
sönglistina, hér á landi, hafi tekist mjög vel, þegar tillit er tekið
til þess, að hér er að ræða um að eins »stutta kenslubók í
hljómfræði«, og þar sem verðið er að eins 1 kr. og 50 au., þá
er engum ofvaxið að eignast hana.
J. L.
Guttormur .T. Guttormsson: Jón Austfirðingur. Winni-
peg 1909.
Jón Austfirðingur er hetjusaga í ljóðum. Söguhetjurnar eru
Jón bóndi, kona hans og 4 börn. Þá koma einnig við söguna út-
flutningsstjóri og ungur götuslæpingur í Winnipeg. Jón er myndar-
bóndi á Islandi; fólkssmalinn ginnir hann til vesturfarar. Hann
flytur vestur með fólk sitt, nemur land, reisir bæ og ryður mörk-